Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021
K100 verður í ferðagírnum í allt
sumar og kynnir fyrir hlustendum
alls konar upplifanir sem hægt er að
njóta á Íslandi. Ferðalagið hófst í
síðustu viku í Sumarborginni
Reykjavík þar sem Helgarútgáfa
stöðvarinnar, með þau Einar Bárð-
ar, Önnu Möggu og Yngva Eysteins,
var í beinni útsendingu frá bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi. Nú
liggur leið K100 til eldgosabæjarins
Grindavíkur sem er örugglega heit-
asti bær landsins um þessar mundir.
Dagskrárgerðarmenn K100 munu
færa hlustendum fróðleik frá
Grindavík og kynna áhugaverðar
upplifanir í bænum. Á morgun,
föstudag, munu þeir félagar, Logi
Bergmann og Siggi Gunnars taka
skemmtilegri leiðina heim í Síðdeg-
isþættinum með því að opna Sjó-
manna- og fjölskylduhátíðina í
beinni útsendingu frá menningar-
húsinu Kvikunni.
Það má segja að við verðum með
kvikuna frá eldgosinu á hælunum í
Síðdegisþættinum, segir Siggi. Okk-
ur langar líka að kynnast Grindavík-
urbæ betur og sjá hvað bærinn hef-
ur upp á að bjóða. Við sláum á létta
strengi og fáum til okkar hressa
bæjarbúa sem gefa innsýn í það sem
þessi frábæri bær hefur upp á að
bjóða. Ég hlakka til að kynnast
Grindavík betur og því sem þar er í
boði.
Fylgstu með á K100 í allt sumar.
Við elskum Ísland.
Í beinni frá heit-
asta bæ landsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dóra Júlía Agnarsdóttir
dorajulia@k100.is
Eins og ég hef áður sagt
ykkur þá hef ég svo gam-
an af því að fylgjast með
skapandi fólki gera frum-
lega hluti.
Ég rakst á skart-
gripahönnuðinn Erlu
Gísladóttur sem frum-
sýndi nýja skartgripa-
línu í gær, 2. júní, og
fyrir þessa línu fær hún
innblástur frá nammi og
nostalgíu. Ég spjallaði
aðeins við Erlu og fékk
hana til þess að segja
mér frá þessu skemmti-
lega verkefni.
Nýja skartgripalínan
ber nafnið Bland í poka
og segir Erla hana vera al-
gjörlega innblásna af sjoppu-
ferðum síð-
ustu aldar
og nostalg-
íunni sem
einkennir
þær. Við
erum að
tala um
ljósbleika
sleikjóa,
falleg háls-
men sem
minna á
hlaupsnuddur, silfurhringa
með lakkrísformi og fleira
sætt og skemmtilegt.
Erla segist tengja við
gömlu grænu plast-nammipokana frá síðustu aldamótum og var
draumurinn að geta afgreitt fyrstu pantanirnar í slíkum pokum.
Hún varð því ótrúlega glöð þegar Tinna Royal, listakona sem
Erla elskar, bauðst til að gefa henni nokkra slíka poka en Tinna
er líka að fara að halda sýningu seinna í júní sem ber einnig nafnið
Bland í poka.
„Tinna Royal er sykurhúðaður engill í mannsmynd,“ segir Erla og
bætir við að hún elski list og hönnun sem þorir líka að vera skemmti-
leg.
Nammi, nostalgía, skartgripir, íslensk hönnun, listamanna kærleikur
og góðvild, hljómar alveg ótrúlega vel og ég verð eiginlega að eignast
nammi-skartgripi þar sem bland í poka sjoppuferðirnar voru hápunktur
æsku minnar!
Bleikur sleikjó Fallegt men sem líkist sleikjó. Grænn poki Margir muna eftir grænu nammipokunum.
Nammi, nostalgía,
skartgripir og góðvild
Ljósmyndir/Aðsend
Bland í poka Er nafnið
á skartgripalínu Erlu.
Erla Dóra
Gísladóttir
20%
AFSL
ÁTTU
R AF
ÖLLU
M SK
ÓM
KAU
PHLA
UP
3.-7.
JÚNÍ
SMÁRALIND - SKÓR.IS
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646