Þjóðmál - 01.09.2018, Blaðsíða 9

Þjóðmál - 01.09.2018, Blaðsíða 9
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 7 Vilji menn deilur um heilbrigðismál er af nógu að taka. Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðis­ ráðherra VG, hefur gjörsamlega mistekist að sameina kraftana að baki heilbrigðis­ stefnunni. Bullandi ágreiningur er milli stjórnar flokkanna í því efni eins og birtist meðal annars í grein sem þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Brynjar Níelsson, rituðu í Morgunblaðið 15. september 2018 og sögðu: „Okkur virðist sem stefna núverandi heilbrigðisráðherra sé að auka starfsemi opinberrar heilbrigðisþjónustu og á sama tíma draga úr framlagi sjálfstætt starfandi sérfræðinga og heilbrigðisstofnana. Það er að okkar mati röng stefna og nauðsynlegt er, áður en stór skref verða stigin, að fyrir liggi langtímaáætlun í heilbrigðismálum okkar. Engum dytti t.a.m. í hug að fjölga starfsmönnum hjá Vegagerðinni þegar auknar framkvæmdir eru fram undan. Þá er farin sú leið að bjóða út fleiri og stærri verk til sjálfstætt starfandi verktakafyrirtækja. Það þarf að bregðast við vandanum sem við okkur blasir í dag og grípa til úrræða sem vinna á biðlistum. Okkar skoðun er sú að það eigi að gera með því að bjóða út verkefni sem sjálfstætt starfandi fyrirtæki á heilbrigðissviði og starfsfólk þeirra geta leyst. Í þessu sambandi má nefna liðskiptaaðgerðir, vistun heilabilaðra og dagvistarúrræði fyrir eldri borgara og sjúklinga. Við höfum reynslu af aðgerð sem þessari þegar augnsteinaaðgerðir voru boðnar út fyrir nokkrum árum. Verkefnið tókst mjög vel, biðlisti hvarf á skömmum tíma og verðið fyrir aðgerðirnar var mjög hagkvæmt.“ Stefna Svandísar Svavarsdóttur er reist á hugsjón vinstri grænna. Hún birtist meðal annars í ályktun þings ungra vinstri grænna þar sem þeir mótmæltu að læknar hefðu fjárhagslegan hag af því að veita þjónustu sína og töldu hag sjúklinga best borgið í biðlistahagkerfi sósíalismans. Í grein í Frétta blaðinu 13. september 2018 sagði heilbrigðis ráðherra: „Við þurfum að fara úr brotakenndu [heil­ brigðis]kerfi, þar sem tilviljun ein ræður því hvaða þjónusta er veitt hvar og af hverjum, og yfir í kerfi þar sem heildarsýn ríkir.“ Orðin „tilviljun ein“ og „heildarsýn“ eru lykilorðin í þessum texta. Fyrir ráðherranum vakir miðstýring í krafti fjárveitinga ríkisins. Ráðuneyti er betur til þess fallið að ákvarða hvar og hverjir veita þjónustu en þeir sem bjóða hana og njóta hennar. Þessu markmiði á að ná með því að nota skattfé almennings í fjárhagslega aðför sem minnkar þjónustuna við skattgreiðendur. Láta á draumsýn sósíalista rætast með því að umturna íslenska heilbrigðiskerfinu. Bullandi ágreiningur er milli stjórnarflokkanna um heilbrigðismálin, eins og birtist meðal annars í grein sem þrír þingmenn Sjálfstæðis­ flokksins, Jón Gunnars­ son, Áslaug Arna Sigur björnsdóttir og Brynjar Níelsson, rituðu í Morgunblaðið 15. september 2018. 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2018 Hótel Á lóðinni næst Hörpu tekur Mariott-lúxushótel óðum á sig mynd þó að ekki sé byrjað að taka pantanir. Hari Almennt séð búum við Íslend- ingar við mjög öflugt heilbrigðis- kerfi. Það byggist ekki síst á fag- lega sterkum mannauði. Sérfræði- læknar okkar njóta þeirrar sérstöðu, ólíkt því sem er í mörgum löndum, að sækja sér framhalds- menntun víða um heim. Með því hefur myndast öflugt tengslanet sem nýst hefur vel okkar fámenna samfélagi. Það eru þó brotalamir í okkar kerfi sem birtast m.a. í biðlistum eftir mikilvægum aðgerðum og ófullnægjandi þjónustu í vistunar- úrræðum fyrir eldri borgara. Það er óþolandi að fólk búi við skert lífsgæði og starfsgetu vegna úr- ræðaleysis varðandi lausnir á vandamáli sem lækning er til við. Álagið á heilbrigðiskerfið á eftir að aukast á næstu árum t.a.m. vegna þess að hlutfall eldri borgara eykst ár frá ári. Afleiðingar þessa munu m.a. birtast í skorti á heilbrigðisstarfsfólki. Við því þarf að bregðast, m.a. með því að skapa tækifæri fyrir þá fjölmörgu heil- brigðisstarfsmenn sem eru erlendis til að koma heim. Til að ná utan um þessa þróun þarf að setja heilbrigð- isstefnu til skemmri og lengri tíma. Með sama hætti og við mótum fjár- málastefnu og leggjum fram sam- gönguáætlun til að ná utan um sambærilega hluti á þeim vett- vangi. Sjálfstætt starfandi heilbrigðis- starfsfólk gegnir veigamiklu hlut- verki í heilbrigðiskerfinu hér eins og í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Samspil þeirrar starfsemi við opinbera kerf- ið eykur augljóslega sveigjanleika og á þar með að geta aukið á hag- kvæmni. Það er ekki skynsamleg ráðstöfum fjármuna að byggja upp opinbert kerfi sem er í stakk búið til að taka við öllum toppum í álagi sem kann að myndast. Okkur virðist sem stefna núver- andi heilbrigðisráðherra sé að auka starfsemi opinberrar heilbrigðis- þjónustu og á sama tíma draga úr framlagi sjálfstætt starfandi sér- fræðinga og heilbrigðisstofnana. Það er að okkar mati röng stefna og nauðsynlegt er, áður en stór skref verða stigin, að fyrir liggi langtímaáætlun í heilbrigðismálum okkar. Engum dytti t.a.m. í hug að fjölga starfsmönnum hjá Vegagerð- inni þegar auknar framkvæmdir eru fram undan. Þá er farin sú leið að bjóða út fleiri og stærri verk til sjálfstætt starfandi verktakafyr- irtækja. Það þarf að bregðast við vand- anum sem við okkur blasir í dag og grípa til úrræða sem vinna á bið- listum. Okkar skoðun er sú að það eigi að gera með því að bjóða út verkefni sem sjálfstætt starfandi fyrirtæki á heilbrigðissviði og starfsfólk þeirra geta leyst. Í þessu sambandi má nefna liðskiptaað- gerðir, vistun heilabilaðra og dag- vistarúrræði fyrir eldri borgara og sjúklinga. Við höfum reynslu af að- gerð sem þessari þegar augn- steinaaðgerðir voru boðnar út fyrir nokkrum árum. Verkefnið tókst mjög vel, biðlisti hvarf á skömmum tíma og verðið fyrir aðgerðirnar var mjög hagkvæmt. Það er á okkar ábyrgð að fá sem besta nýtingu á því fjármagni sem til ráðstöfunar er hverju sinni. Það er engin glóra í þeirri sviðsmynd sem birtist okkur í umræðunni um liðskiptaaðgerðir. Sjúklingar eru sendir til útlanda á sama tíma og hægt er að framkvæma allt að tvær til þrjár aðgerðir fyrir verð einnar hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtækjum hér heima. Þetta er fráleit ráðstöfun fjár- magns og svar ráðherrans að ekki sé gert ráð fyrir fjármunum til að framkvæma aðgerðirnar hér heima er algerlega út í hött. Samhliða út- boðsleið eins og þeirri sem við töl- um fyrir væri eðlilegt að opinberar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspít- alinn – háskólasjúkrahús leigðu út aðstöðu til sjálfstætt starfandi að- ila. Þannig fengist betri nýting á t.a.m. skurðstofum og tækjabúnaði sem ekki er í notkun stóran hluta sólarhringsins. Markmiðið á að vera að leita allra leiða til að bæta þjónustu við fólk og nýtingu fjármuna, í stað þess að leggja stein í götu einka- reksturs í heilbrigðiskerfinu, sem sannarlega mun leiða til bættrar þjónustu, betri nýtingar fjármuna og styttingar biðlista – öllum til hagsbóta. Hagsmunir sjúklinga í forgang Eftir Jón Gunnarsson, Áslaugu Örnu Sigurbjörns- dóttur og Brynjar Níelsson »Markmiðið á að vera að leita allra leiða til að bæta þjón- ustu við fólk og nýtingu fjármuna, í stað þess að leggja stein í götu einkareksturs. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur Höfundar eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Brynjar Níelsson Jón Gunnarsson Ákveðins misskiln- ings gætir í umræðu um samkeppnismál þegar fullyrt er að einsleitni í verði á vörum og þjónustu sé til marks um samráð. Í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku sakaði verkefnastjóri verð- lagseftirlits ASÍ lág- vöruverðsverslanir engu að síður um „þögult samráð“ þar sem verðlagn- ing þeirra á vörum er svipuð. Ásak- anir um samráð eru ekki léttvægar og því ætti að fara varlega í slíkar yf- irlýsingar. Einsleitt verð getur vissulega ver- ið einkenni samráðs – en það er líka einkenni virkrar samkeppni. Þetta er kannski ekki auðskilið og því ágætt að reyna að taka einfalt dæmi. Ímyndum okkur markað þar sem samkeppni ríkir, t.d. um sölu á kaffi. Dag einn taka seljendur sig saman og semja um að hækka verðið til að auka hagnað hvers og eins. Niður- staðan verður sú að allir á mark- aðinum selja kaffið á sama háa verð- inu. Allir verða að spila með í samráðinu til að halda verðinu uppi því ef einn lækkar verðið þá hópast allir kaffineytendur þangað og hinir tapa. Hvað ef heilbrigð virk samkeppni ríkti á þessum sama kaffimarkaði en ekkert samráð? Það nákvæmlega sama myndi gerast, þ.e. kaffiverð væri svipað eftir samkeppnisaðilum en þó lægra en ef um samráð væri að ræða. Sá sem myndi verðleggja kaffið of hátt myndi fljótlega tapa öllum sínum viðskiptavinum til þeirra sem lægra verð hefðu. Í heil- brigðri samkeppni er niðurstaðan því svipuð og ef um samráð væri að ræða, þ.e. verðið helst einsleitt. Eðli markaða er ólíkt svo að einsleitni í verði getur verið misjöfn – en nið- urstaðan er engu að síður sú sama: Einsleit verðlagning segir lítið sem ekkert um hvort samráð sé til stað- ar. Til að geta sagt nokkuð um sam- ráð, þögult eða ekki, eða hversu virk samkeppni er þarf að setja verðlagn- ingu í samhengi við afkomu, launa- kostnað, fjármagnskostnað, mark- aðsaðstæður og fleira. Jafnvel þótt slíkar upplýsingar liggi fyrir nægja þær ekki sem sönnun fyrir sam- ráði. Í þessu samhengi má þó nefna að hagn- aður á íslenskum smá- sölumarkaði var 4% af tekjum árið 2016 skv. tölum Hagstofunnar, launakostnaður fyr- irtækja hefur hækkað um 36% á fjórum árum, fjármagnskostnaður á Íslandi er meiri en í ná- grannalöndunum og samkeppni fer frekar harðnandi með innreið erlendra aðila og aukinni netverslun. Þannig virðist ekkert tillit tekið til ofangreindra þátta í fullyrðingum og röksemdafærslu fulltrúa ASÍ. Í fyrr- nefndri frétt bendir fulltrúi ASÍ enn fremur á að innkoma Costco hafi sannað að um þögult samráð sé að ræða þar sem svigrúm hafi verið til verðlækkana. Vert er að benda á að styrking krónunnar skilaði sér í lægra vöruverði til neytenda ári áð- ur en Costco var opnað en innfluttar mat- og drykkjarvörur lækkuðu um 10,5% frá ársbyrjun 2016 þar til Costco var opnað 2017. Síðan þá hef- ur verðið aftur á móti hækkað um 1%. Fleira kemur til, þar á meðal fyrrgreindir þættir sem þrýsta þó frekar verði upp á við ef eitthvað er. Því er ekki að sjá að einhverskonar samráð hafi haldið aftur af verð- lækkunum – þvert á móti. Viðskiptaráð hefur í yfir heila öld stutt virka samkeppni og jafnan samkeppnisgrundvöll fyrirtækja á Íslandi. Í raun finnast fáir sem eru mótfallnir samkeppni, enda er hún mikilvægt afl framfara og bættra lífskjara allra. ASÍ og Viðskiptaráð eru að öllum líkindum í megin- atriðum sammála um þetta. Aðhald neytenda er líka af hinu góða og eðli- legur hluti af virkri samkeppni. Það réttlætir þó ekki að hrópa samráð sé verð einsleitt. Sama verð þýðir ekki samráð Eftir Ástu Sigríði Fjeldsted Ásta Sigríður Fjeldsted »Einsleit verðlagning segir lítið sem ekk- ert um hvort samráð sé til staðar. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.