Þjóðmál - 01.09.2018, Blaðsíða 61
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 59
Hannes leiðir rök að því að íslenskir ráðamenn
hafi brugðist rétt við með neyðarlög unum
6. október 2008, þegar íslenska ríkið tók ekki
lagalega ábyrgð á innstæðum, heldur gerði
innstæðueigendur að forgangskröfuhöfum í
búum bankanna. Það sé rangt að með því hafi
breskum og íslenskum innstæðu eigendum
verið mismunað, því að hvorir tveggja hefðu
orðið forgangskröfuhafar, heldur hafi í raun
innstæðueigendum og öðrum kröfuhöfum
verið mismunað, og hafi legið til þess gildar
ástæður. Hannes rifjar upp að ráðherrar
Samfylkingar innar hafi verið tregir til að
samþykkja varnar vegg þann um Ísland (ring
fencing), sem seðlabankastjórarnir þrír hafi
lagt á ráðin um.
Lærdómar Evrópuþjóða af íslenska
banka hruninu séu:
1) Hin einbeitta og ötula forysta
Seðla bankans, sem varaði við útþenslu
banka kerfisins og undirbjó í kyrrþey
áætlun um varnarvegg, skipti sköpum.
2) Hagkerfið þarf ekki að hrynja þótt ekki
sé komið í veg fyrir að bankar fari í þrot.
Allt íslenska bankakerfið hrundi en Ísland
dafnar vel.
3) Skynsamlegt er að veita innstæðu
eigendum forgangs kröfur í bú banka,
enda er verið að taka það ráð upp víða
annars staðar.
4) Sé það gert þarf ekki ríkisábyrgð á
innstæðum, en slík ábyrgð getur einmitt
leitt til freistnivanda.
5) Þegar skapað er geðþóttavald, eins og
gert var með hryðjuverkalögunum bresku,
er hætt við að það verði misnotað, eins og
ríkisstjórn breska Verkamannaflokksins
gerði þegar hún beitti þeim gegn
Íslendingum.
Raddir
fórnarlambanna
Þriðja skýrsla Hannesar fyrir New Direction ber
heitið Raddir fórnarlambanna: Drög að yfirliti
um andkommúnískar bókmenntir (Voices of
the Victims: Notes Towards a Historiography
of AntiCommunist Litera ture). Hún er 61 bls.
og er skrifuð í tilefni hundrað ára afmælis
bolsévíkabyltingar innar rússnesku.
Í upphafi rekur Hannes stuttlega leið
kommúnismans frá Pétursborg í Rússaveldi
1917 til Pyongyang í NorðurKóreu 2017.
Hvarvetna hefur þessari stefnu fylgt eymd og
kúgun, hungursneyðir, fjöldaaftökur, fanga
búðir, flokkshreinsanir, átthagafjötrar og
rit skoðun. Hannes telur að þetta sé engin til
viljun, heldur eðlisnauðsyn kommún ismans.
Í stefnunni sé fólgið að afnema eigi bestu
tryggingu skoðanafrelsisins, sem væri dreifð
yfirráð yfir atvinnutækjunum. Vitnar Hannes
um þetta í tvo kommúnista: Rósa Lúxemborg
lagði áherslu á að frelsið væri alltaf frelsi
stjórnarandstæðingsins. Lev Trotskíj sagði
að í landi þar sem stjórnin væri eini vinnu
veitandinn biði stjórnarandstæðingsins
hægur hungurdauði.
Hannes reifar einnig rök Friedrichs A. Hayeks
fyrir því að hvers konar sósíalismi sé „leiðin til
ánauðar“. Ef á að skipuleggja atvinnulífið í stað
þess að treysta á frjáls markaðsviðskipti þarf
að skipuleggja mennina líka, fækka þörfum
þeirra og einfalda þær, og það tekst aðeins
með því að taka flest eða öll mótunaröfl
mannssálarinnar í þjónustu stjórnarinnar,
meðal annars fjölmiðla, íþróttir, dómstóla,
listir og vísindi, en þá er komið í alræði, eins
og það hefur jafnan verið skilgreint.
Hannes segir síðan deili á helstu ritum sem
komið hafa út um kommúnisma. Verður hér
aðeins minnst stuttlega á nokkur þeirra sem
komið hafa út á íslensku. Þjónusta, þrælkun,
flótti er eftir Ingríann Aatami Kuortti, sem var
lúterskur prestur og þjónaði þremur sóknum
í Ingríu, nálægt Lenínsgarði eða Pétursborg.
Ingríar eru náskyldir Finnum og skilja finnsku.