Þjóðmál - 01.09.2018, Blaðsíða 81
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 79
Óvænt samvinna Rússa og Englands, Dvorkovich og Short.
Sumum finnst þessi „samvinna“ Englands og Rússlands á
skáksviðinu sérkennileg í ljósi samskipta þjóðanna, sem eru
við frostmark eftir morðtilraun á Skripalfeðginunum.
Við sögðum frá þeim Makropoulos og Short í
síðasta tölublaði en þá var framboð Rússans
ekki komið fram.
Dvorkovich þessi er ekkert peð. Hann var
áður aðstoðarforsætisráðherra Rússlands og
var formaður mótsnefndar HM í fótbolta í
Rússlandi. Baklandið er sterkt, sjálfur Vladimír
Pútín! Rússar beita óspart pólitískum
þrýstingi, sem varð t.d. til þess að skipt var
um FIDEfulltrúa í Serbíu.
Nigel Short er ekki talinn eiga neinn mögu
leika á sigri. Hann vonast til þess að hvorugur
hinna fái meirihluta í fyrstu umferð. Þá geti
hann komið sínum áherslum að í samninga
viðræðum við annan hvorn hinna, væntan
lega þá Dvorkovich, en enski stórmeistarinn
er svarinn óvinur Makropoulos.
Það flækir málin að samlandi Shorts, Malcolm
Pein, er meðframbjóðandi Makropoulos
og greiðir einnig atkvæði fyrir hönd enska
skáksambandsins. Fyrir skemmstu var mynd
tekin saman af Short og Dvorkovich þar
sem þeir gagnrýndu báðir Makropoulos.
Sumum finnst þessi „samvinna“ Englands og
Rússlands á skáksviðinu sérkennileg í ljósi
samskipta þjóðanna, sem eru við frostmark
eftir morðtilraun á Skripalfeðginunum.
Á þessu augnabliki er erfitt að segja til um
hvort Grikkinn eða Rússinn vinni. Örugglega
á mikið eftir að ganga á bæði fyrir framan og
bak við tjöldin í Batumi.
Skákáhugamenn og áhugamenn um
skákpólitík geta fylgst með á www.skak.is.
Þar verða baráttunni bæði innan og utan
skákborðsins gerð góð skil á meðan á mótinu
stendur.
Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.