Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Page 38
Múlaþing
María Aradóttir og Þorleifur Asmundsson, Naustahvammi. Ljósmyndari ókunnur. Eigandi myndar: Skjala- og
myndasafn Norðfarðar.
fyrir mér íbúðarhús og útihús Þorleifs og
gamla sjóskúra hans og b) nýlegt íbúðar-
hús Ragnars og framundan því sjóhús og
bryggju og fiskibát við ból. Og þarna er mikil
mannaferð. í Naustahvammi er ijölmenni og
frískleiki yfir staðnum.
Þorleifur í Naustahvamnii er sonur
Ásmundar og Þórunnar í Vindheimi. María
kona hans er dóttir Ara Marteinssonar, bónda í
Naustahvammi um langan aldur og Vilhelmínu
Bjarnadóttur Sveinssonar í Viðfírði. - Ragnar
Bjamason, svili Þorleifs, var ættaður af Suður-
nesjum, úr Garðinum, en kom til Norðijarðar
16 ára unglingur í atvinnuleit og ílentist þar.
Ari Ragnarsson segir mér að faðir hans hafí
upphaflega verið ráðinn á bát frá Eskifirði,
en úr þeirri ráðningu varð ekki. Var honum
ráðlagt að reyna fyrir sér á Norðfirði og réðst
þá til sjóróðra hjá Þorleifí Ásmundssyni. Á
Norðfírði kynntist hann Gyðu Aradóttur og
bast Naustahvammi ævilangt.
Er ekki að orðlengja það að Nausta-
hvammsfólk var í næsta nágrenni við okkur
á Bjargi. Mátti heita að á þeim bæjum þekkti
ég næstum hvem mann og hef haldið kunn-
ingsskap við þá marga fram á þennan dag.
Þorleifur Ásmundsson er einn af þeim
mönnum, sem hefur lag á að verða manni
minnisstæður. Á randi mínu um nágrennið
á bamsaldri bar mig oft að húsi Þorleifs og
Maríu. Þar var líf og fjör, fjölmenni, glaðlyndi
og góðvild fram úr öllu hófí. En þar ríkti líka
alvara, þegar það átti við. Svo glaðsinna og
frjálslyndur sem Þorleifur var - og vafalaust
átti María þar sinn hlut - þá skorti ekki á
hollustu við guðs kristni og góða siði. Ég var
óvanur húslestrum og reglufastri heimaguð-
rækni á bernskuheimili mínu. Og kirkjusókn
36