Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Side 82
Múlaþing
unum. Ekkert af bömunum gengur í fóstur, en
í sögu er það, að herramaður einn, hafi komið
í Skálanes, að nafni Ami, helzt úr Skagafirði,
og boðið Jakobi að taka Runólf son hans og
koma honum í skóla á Hólum. Víst er það,
að Runólfur fór í Skagafjörð, en það þykir
mér líkindi á, að það hafí ekki verið fyrr en
Jakob var dáinn og þó fyrir 1784, og hér
hafi Ami Reynistaðamágur verið á ferðinni.
Ekki varð af skólagöngu Runólfs, en hann
bjó í Hjaltadal, kvæntist sunnlenzkri konu og
átti 10 börn. Eitt af þeim var Guðrún móðir
Sigurðar rithöfundar frá Balaskarði Ingjalds-
sonar. I ævisögu sinni, hinni merkustu bók,
segir Sigurður frá móðursystkinum sínum
og systkinum. Ingibjörg Runólfsdóttir kom
til Vopnaijarðar, sem síðar segir. Steinunn
átti þann mann er Sigurður hét Sigurðsson
og er ókunnugur að ætt. Þau koma í Norður-
Skálanes 1786 með þrjú börn og áttu síðan
fleiri. Sigurður dó um 1790, og komust bömin
lítt til þroska. Jakob f. 1786, er léttadrengur í
Syðrivík 1816, af hinum hef ég eigi spurnir.
Steinunn fór austur á Hérað og átti þar bam
með kvæntum manni, Torfa Narfasyni á Haf-
ursá og hét Torfí f. 1792, og bjó hann seinna á
Hafursá og Strönd í Vallahreppi, og á marga
afkomendur. Steinunn er á Eiðum 1816, 62
ára gömul. Ingiríður giftist ekki, en átti 1
bam, sem eigi komst til þroska. Ingibjörg
Jakobsdóttir átti Ögmund, er kallaður var hinn
sterki, Einarsson og bjuggu þau í Fagradal
lengst og afkomendur þeirra síðan sumir,
vom sérstæðir menn og sumir afrenndir menn
að afli. Ögmundur var sonur Einars skálds á
Brekku í Tungu, Steingrímssonar og Guð-
rúnar Sigurðardóttur á Kleppjámsstöðum í
s. sv. 1703, Þórðarsonar. Systir Guðrúnar
var Kristín móðir Gríms prests og skálds
Bessasonar, svo þessi skáldskapur í ættinni
er frá Kleppjárnsstöðum. Móðir Ögmundar
er án efa Margrét Ögmundsdóttir, Ögmunds-
sonar, Sigfússonar prests í Hofteigi Tóm-
assonar. Hjálmar hét sonur Ögmundar og
Ingibjargar. Hann bjó í Skógum í Vopnafírði.
Sonur Hjálmars hét Jósef. Hann bjó í Skógum
og dóttir hans Sigríður bjó í Skógum, átti
Jón Jónsson, ættaðan frá Hólmi á Mýrum
í Austur-Skaftafellssýslu. Þeirra börn búa
í Skógum, Jósef og Sigríður, en Kristín á
Ytra-Núpi. Börn Ögmundar í Fagradal voru
auk Hjálmars, Runólfur sterki og Dómhildur
sterka. Dóttir Runólfs var Isafold sterka, sem
kemur við þjóðsögur; móðir Ulfars fagra.
Margrét, f. 1768, giftist bamung árið 1784 eða
85 Jóni syni Ólafs lögréttumanns á Kóreks-
stöðum, Péturssonar, Péturssonar, Bjamasonar
sýslumanns á Bustafelli, Oddssonar. Jón var
þá ekkjumaður og við aldur og fyrri konu
börnin milli fermingar og tvítugs. Þessi böm
og fyrri kona Jóns hafa fallið út úr „Ættum
Austfirðinga“. Þau Jón bjuggu á Felli og hlóðu
niður bömum frá 1786 til aldamóta. Þá dó
Jón. Fimm stúlkur og 1 drengur lifðu. Salný
Jónsdóttir fór til Skagaljarðar, giftist þar og á
afkomendur. Hún var föðurmóðir Jóns bónda
á Seilu, Jónssonar, sem mér hefur verið sagt,
að muni hafa verið afi Sigurðar Skagfield
söngvara. Fátt mun afkomenda annarra dætra
Jóns og þá frekast í Ameríku.
Jóhannes hét sonur Jóns og Margrétar, f.
1800. Margrét er ráðskona á Hnitbjörgum í
Hlíð 1816 og með Jóhannes. Hann kvænt-
ist Þorbjörgu dóttur Jóns Guðmundssonar
á Viðastöðum og Sesselju dóttur Sigurðar
hreppstjóra á Víðivöllum, Einarssonar. Var
Sesselja systir Ingibjargar móður Sigurðar
á Mýmm Eiríkssonar, langafa míns. Synir
Jóhannesar voru Sigurður stórkaupmaður
í Kaupmannahöfn, er varð ríkur maður, og
Kristinn Sveinn, faðir Guðrúnar, móður Frið-
bjöms bónda á Hauksstöðum Kristjánssonar,
er lézt á þessu ári. Guðlaug Jakobsdóttir átti
(41 árs) Grím í Leiðarhöfn, Grímsson og var
hann þá 19 ára. Þeim nýttist ekki af hjóna-
bandi og vom skilin með dómi 1827, áttu 1
bam sem dó strax. Guðrún Jakobsdóttir varð
tvígift, en barnlaus.
80