Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 115
Kvæðiskorn um heimalýð á Hallormsstað
Nokkur orð um kvæðið, höfundinn og tilefni birtingar.
Kvæðið var skrifað upp í júní 2009 eftir handritinu „Ljóðmæii andleg og veraldleg, síra
Bjarna Gissurarsonar prests að Þingmúla í Skriðdal í Múlasýslu“ (BGissLbs). Starfsmenn
þjóðdeildar Landsbókasafns - Háskólasafns, Eiríkur Þormóðsson og Sjöfn Kristjánsdóttir
veittu góðíúslega aðstoð við uppskriftina og yfirlestur.
Höfundur kvæðisins lét af prestsskap 1702 og dvaldi um stundarsakir hjá Amdísi dóttur
sinni á Hallormsstað eftir að maður hennar, Þorleifur prestur Guðmundsson, lést það ár af
slysförum á Þórdalsheiði. Hann var þannig á staðnum þegar manntalið var tekið 1703 en
fluttist á því ári til sonar síns í Stóra-Sandfelli og dvaldi þar til ársins 1708. Þá fluttist hann
aftur í Hallonnsstað og dó þar árið 1712. [Heimild: Ættir Austfirðinga.]
Hvenær kvæðið var ort verður ekki fullyrt með neinni vissu: „Öldruð Manga“ er sú eina
af heimafólki sem ekki er getið í manntalinu. Hún gæti hafa burtkallast áður en manntalið
var tekið ellegar flust á staðinn síðar, og kvæðið þá e.t.v. ekki ort fyrr en eftir 1708.
Niðjar Guttorms Pálssonar hittust á Hallormsstað dagana 10. — 12. júlí 2009. Kvöldvaka
með íjöbreyttri dagskrá var í Hússtjórnarskólanum 11. júlí. Meðal atriða var kynning og
upplestnr á Kvœðiskorni Bjarna. Kvæðinu og laglínunum sem birtar era hér á opnunni var
varpað á tjald. Fyrst æfðu viðstaddir laglínu Jón Ásgeirssonar tónskálds við „mottó“ eða
viðlag Bjarna „Heimalýður á Hallormsstað ...“. (Laglínuna skrifaði Jón 1998, og nokkrir í
hópnum kunnu hana frá því hún var sungin í afmælishófi á því ári). - Síðan fékk tónlistarfólk
í hópnum það hlutverk að leiða ljöldasöng á öllum 13 erindum kvæðisins. Þar var notast við
lagstúfinn „Kvæðiskorn um heimalýð ...“ sem settur var á blað fyrir kvöldvökuna og hugs-
aður sem tilraun til að tengja lokataktana í stefi Jóns við niðurlagsorð hvers erindis, „Hvað
sem lýr ...“. - Hollráð Bjarna Gissurarsonar, ’að halda glaðværðinni’, reyndust hópnum
vel þessa júlídaga á Hallormsstað. ^ ^ „
, J Lritnnar Uuttonnsson
Heimafólk á Hallormsstað árið 1944 ásamt nokkrum gestum. Myndin er tekin 12. júlí i sextugsafmœli Guttorms
Pálssonar. Ljósmyndari er óþekktur. Eigandi myndar: Gunnar Guttormsson.
113