Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Qupperneq 121
Snjóflóðið mikla á Seyðisfirði
brotið. Fólkið hafði ekki hugmynd um flóðið,
hélt bara að það hefði snjóað svona mikið. FIús
Jóhanns Matthíassonar stóð utar og nú lengist
vegur á milli húsa. Kona Jóhanns hét Jóhanna
Jóhannesdóttir. Sonur þeirra var Einar. Þar
var einnig Karl Einarsson sem gekk í barna-
skólann. Það fór ofan af þessu húsi en fólki
var bjargað. Fyrir utan hús Jóhanns var hús
Magnúsar Sigurðssonar. Kona hans var Svein-
björg Sveinsdóttir, 27 ára gömul, og börn tvö,
Sveinbjörg 2 ára og Sveinn 1 árs. Konan og
bömin fórust og lík bamanna fundust ekki fyrr
en á laugardaginn fyrir hvítasunnu. Magnús
var staddur á Mjóafírði en Sveinn tengda-
faðir hans og mágkona og dóttir Magnúsar,
Jóhanna, björguðust.
Fyrir utan og neðan hús Magnúsar
stóðu „Grundarbæir“. Á „Fremri - Grund“
bjó Guðný Sigurðardóttir, ekkja 53 ára, og
sonur hennar, Sigurður Eiríksson, Vilborg
Nikulásdóttir var gestkomandi. Þar var einnig
Davíð Petersen 25 ára. Úr þessu húsi bjarg-
aðist drengurinn Sigurður. Hitt fólkið fórst.
Á „Ytri-Gmnd“ bjó Steingrímur Sigurðsson
38 ára og kona hans, Ingibjörg Rafnsdóttir
42 ára. Þau fómst bæði. Eg vil geta þess að
Steingrímur var að gefa hesti sínum þegar
flóðið féll og fannst hann þar með aðra hönd
á makka hans en hina á stalli. Á „Ytri-Gmnd“
fórst líka Sigurbjörg Þorkelsdóttir 31 árs og
sonur hennar, Einar Olafsson, 2 ára. Eg geng
út frá að þarna hafí verið fleira fólk þó ég
muni það ekki.
Nú hef ég lýst þessum ellefu húsum sem
stóðu á „Fjarðar“túni og fyrir ofan það. Átta
hús brotnuðu meira og minna. Flóðið fór
yfír tvö og eitt skekktist svo að það var ekki
íbúðarhæft. Ekkert af þessum húsum eða því
sem í þeim var lenti út á sjó. Þá kem ég að
þeim fímm íbúðarhúsum sem stóðu fyrir utan
túngarðinn í „Firði“. Ég vil taka það fram, að
þar var ég ekki kunnugur nema í einu húsi en
man vel hvarhúsin stóðu og um húsráðendur
að mestu leyti. Hótelið var stórt timburhús.
Karl Einarsson. Ljósmyndari: Brynjólfur Sigurðsson.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
Það stóð rétt innan við malarkambinn. Það
eyðilagðist í flóðinu. Sá sem átti þetta hús
hét Thostrup, danskur maður. Ekki veit ég
hve margt fólk bjó þar. Henrietta Thostrup,
17 ára, fannst í flæðarmálinu með lífsmarki,
en deyr í höndum þeirra sem fundu hana.
Hún var með eldavélarhring um háls og hníf
í hendi. Bjarni Bjamason, vinnumaður 30 ára,
og Guðríður Eiríksdóttir, 34 ára, munu hafa
verið á hótelinu.
Þá stóðu tvö hús meðfram túngarðinum í
„Firði“. Neðra húsið var timburhús. Þar bjó
Valdemar Þorláksson Blöndal, 30 ára, og kona
hans, Guðrún Bjarnadóttir 40 ára. Þetta hús
eyddist alveg og fólkið fórst. Húsið sem ofar
stóð hét „Garðhús“. Þar voru tveir búendur,
Einar Pálsson, sem var seinna ferjumaður
á Fjarðará, og Oddur Jónsson. Hann fór til
Ameríku. Ekki veit ég hve margt fólk var
119