Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Page 122
Múlaþing
Hótel Island sem fór á haf út í snjóflóðinu. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
í þessu húsi eða hefur farist þar, en húsið
brotnaði allt. Húsið „Leira“ stóð úti á mal-
arkambinum út af þessum húsum. Þar bjó
Þorsteinn. Rannveig Sigurðardóttir hét kona
hans. Þetta hús brotnaði. Mér er ókunnugt um
hvort fleira fólk hefur búið þar.
Næsta hús var „Álfhóll'f Það stóð hæst af
þessum húsum. Þar bjó Sigurður Þórarinsson
62 ára. Kona hans var Ingibjörg Geirmunds-
dóttir 49 ára og tveir drengir þeirra, Steinn
ellefu ára og Guðjón átta ára. Þetta fólk fórst.
Tvær dætur þeirra, fullorðnar, slösuðust báðar
og biðu þess aldrei bætur.
Þá hef ég lýst hvar þessi sextán hús stóðu
sem lentu í flóðinu. Ekkert af þeim stóð á
„Fjarðaröldu“. Flóðið féll ekki á „Fjörð“ og
mun það hafa bjargað „Firði“ að flóðið hefur
klofnað á hólnum.
Nú vík ég að vatnaflóðinu 1882. Einu sinni
þegar ég kom suður í lyfjabúðina, þá spyr lyf-
salinn mig hvort ég geti sagt sér hvar „Ving-
ólfur“ hafi staðið. Eg gat ekki sagt honum
annað en það að það muni hafa verið húsið
sem hafi lent í vatnsflóðinu. Ég spurði Sig-
björn Sigurðsson frá „Álfhól“ um „Vingólf1
og gaf hann mér þessar upplýsingar:
Húsið „Baldurshagi“ stóð utarlega á túni
sem nú er kallað „Hermannstún“. Það var stór
skúr utan við „Baldurshaga“. Hingað flyst svo
venslafólk Jónasar Stephensen og Margrétar
konu hans og byggir þá ofan á skúrinn og
nefnir „Vingólf‘. Ef þetta er rétt hjá Sigbirni
hefur vatnaflóðið tekið hús sem hefur borið
tvö nöfn, „Baldurshaga“ og „Vingólf‘.
Þegar ég lít yfir Iistann yfir það fólk sem
fórst í snjóflóðinu, sé ég ljögur nöfn á fólki
sem ég veit ekki hvar hefúr átt heima. Nöfn
þeirra eru þessi:
Geirmundur Guðmundsson, 30 ára,
Markús Ásmundsson lyfsali, 29 ára, Hólm-
fríður Þórðardóttir, 34 ára og Ragnheiður
Jónsdóttir, 24 ára.
Hvað nú er lifandi af því fólki sem lenti í
snjóflóðinu, veit ég ekki.6
6 Fólkið er á lífi árið 1955.
120