Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Page 126
Múlaþing
Hér sést yfir hluta svœðisins sem snjóflóðið féllyfir árið 1885. Ljósmynd: Sólveig Sigarðardóttir.
3. mars 1885
Var Valdim. Blöndal og kona hans jarðsett á
Dvergasteini.
9. mars
Voru tólf líkjarðsett á Dvergasteini: Magnús
lyfsali, Geirmundur, Henrietta Thostrup og
fleiri, hafa ekki fleiri lík fundist enn; veður
hið ákjósanlegasta; að vísu var frostið 14
gráður R. um morguninn en komst niður í +1
gráðu um kvöldið, sólskin og logn um daginn.
Hélt séra Björn húskveðju hér innra; svo voru
kisturnar allar bornar út á Liverpool bryggju
og svo fluttar þaðan út eftir og öll jörðuð í
einni gröf. Var það einhver hin sárasta sjón
er ég hefi séð að líta niður í hina stóru gröf,
þegar búið var að raða í hana öllum kistum,
með líkum hinna framliðnu, er svo sviplega
var svift úr mannfélaginu, flestu á besta aldri
og í blóma lífsins. Eftir jarðarförina héldum
við öll heimleiðis, en stóðum dálítið við á
Vestdalseyrinni. Eins og eðlilegt er, var mjög
ijölmennt við jarðarförina.
11. mars
Byrjaði ég aftur á kennslustörfum í skólanum,
bættust tveir drengir við; fundust þrjú lík, þar
á meðal Davíð Petersen.
12. mars
Fannst lík Steina litla sem var hér í skól-
anum.
13. mars
Hvass suðvestan, létt loft, hitinn 7 gráður á
R. Tók mikið upp um nóttina; fundust tvö lík;
þá er enn ijögur lík ófundin.
22. mars
Sunnudagur. Voru átta lík úr snjóflóðinu
jarðsett á Dvergasteini, þar á meðal Davíð
Petersen, einnig frú Thomsen, sem sál. nýlega;
124