Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Side 127
Snjóflóðið mikla á Seyðisfirði
var mjög ijölmennt við jarðarförina enda
veður hið besta, sólskin og blíða logn.
Frásögn Halls Engilberts Magnússonar
Einn sunnudagsmorgunn er mér enn í minni
og ógleymanlegur. Eg sat út við glugga og var
að lesa í biblíusögunum. Það var bjartur og
heiður vetrarmorgunn, mig minnir í febrúar-
mánuði. Þó sást ekki sól um það leyti á Seyð-
isfirði, því að íjöllin skyggja á allar hliðar.
Allt í einu heyrði ég voða dunur úti, og
svo syrtir í lofti. Ég sé ekki stafaskil í biblíu-
sögunum. Ég hafði lesið um heimsendi, og
ég hélt, að hann væri að koma. Ég heyrði óp
og köll og grát og kveinstafi niðri í húsinu
og allt um kring. Faðir minn kom æðandi
upp stigann, greip mig sér í fang og bar mig
niður og út. Hvað hafði skeð? - Snjóflóð!
sagði hann.
Hann bar mig niður á Ölduna, sem kallað
var, þar sem verzlanir þorpsins og pósthúsið
var. Flóðið hafði komið úr botni eða stórri
skál, sem var í hátoppi tjallsins Bjólfur, sem
gnæfír yfír þorpinu og kaupstaðnum á Öld-
unni. Flóðið tók yfír allt miðsvæði kaup-
túnsins, tók með sér fjölda húsa og þar með
barnaskólann9 og flutti allt í hendingskasti út í
sjóinn. En um leið og flóðið stöðvaðist, hljóp
allur snjórinn á hálastorku og varð harður sem
glas, og þar sáust öll verksummerki.
Þessi voðaatburður, sem öllum í þessu litla
þorpi kom á óvart, verður öllum ógleyman-
legur ævilangt, sem þar voru viðstaddir og
héldu lífí óskaddaðir, og þá ekki síður hinum,
sem limlestir lifðu. Tuttugu og tjórir menn
misstu lífíð þennan morgun á örstuttum tíma.
9 Samkvæmt öörum heimildum féll snjóflóðið ekki á bamaskólann.
1. Ejri-Jaðar 8. Hátún 15. Álfhóll
2. Neðri-Jaðar 9. Hús Gests Sigurðssonar 16. Leira
3. Efra-Hátún 10. Fremri-Grund
4. 5 Sigmundarhús 11. Ytri-Grund 12. Hótelið Númer húsanna eru hér staðsett eftir korti sem teiknað
6. var eftir minni Haraldar Guðmundssonar jrá Firði, og
7. Hús Magnúsar Sigurðssonar 14. Garhús sett inn á hluta af aðalskipulagi SeyðisJJarðar.
125