Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 150
Múlaþing
Þú minnist á Björn afa minn í Húsey. Hann var merkilegur karl, sem jeg harma að hafa ekki
haft stráksvit til að ræða meira við og láta segja mjer meira en jeg gerði. Hann var ágœtlega
greindur, stálminnugur og margfróður og hefi jegþar um sögusögn annarra t.d. Einars Jónssonar.
Hann hafði einlœgt verið sárfátœkur, en létþað ekki drepa fróðleiksáhuga sinn þótt hann œtti fárra
kosta völ um lestur bóka, sem þá voru ekki á hverju strái. Hann hafði yndi af að ræða við menn
um landsins gagn og nauðsynjar ogþað, sem gerðist út íþeim stóra heimi. Mjer er sagt að hann
hefði verið mikill Björns Jónssonar maður og kunni víst utanað Isafoldþeirra tíma og mun enda
hafa haldið það blað í lengstu lög. Það voru góð húsakynni í Austurbænum í Húsey á þeirra tima
mælikvarða og oft gestkvœmt og þá kom gamli maðurinn austur til að skrafa við gestina og Ijek á
alls oddi, spurði frjetta, sagði frá oggaman hafði hann af 'að koma af 'stað umræðum um landsmál
og varþá í essinu sínu til að rökræða ef einhver var á annarri skoðun þar en hann sjálfur og hjelt
fram sínu máli hver sem í hlut átti, en œtíð í Ijettum og elskulegum tón.
Jæja Gísli minn. Jeg veit ekki hvaða ósköpþú ert búinn að fá mig til að romsa upp og kemurþar
til, meðal annars, að jeg veit að þú ert fróður maður og hefir áhuga fyrir öllu varðandi hið liðna,
mönnum og málefnum. Um heimboðþitt til okkar hjónanna vildi jeg segja að vissulega hefðum við
hjónin áhuga fyrir að þiggja það þegar vel stæði á fyrirykkur og okkur á nœsta sumri. Við sjáum
nú hvað setur. Með bestu kveðjum og óskum.
Viðbót: Fyrir nokkru flutti Sigurður Jónsson frá Haukagili sinn vikulega vísnaþátt og las,
meðal annars vísuna ,,Eg á von á vænum kút“, sem hann taldi vera eftir Björn Björnsson bróður
Valdim. Björnssonar. Jeg hringdi til hans og sagði að sú vísa vœri eftir Pál Olafsson og tekin úr
Ijóðabrjefi Páls til Jóns Jónssonar, eldra, Bakkagerði. Sigurður sagðist hafa tekið, eða fengið,
vísuna úr kunningjabrjefi frá Birni, þar sem hann hefði ekki haft hana í gœsalöppum ogþví tekið
hana sem orta af Birni. Sigurður sagði að Ben. Gíslas. frændi þinn vœri einnig búinn að hringja
til sín og segði það sama og jeg. Kvaðst Sigurður leiðrj. þetta í næsta vísnaþœtti sínum. I þessu
símarabbi okkar Sig. sagði hann að nú væri fundin enn kvœðasyrpa eftir Pál og mundi það vera
Ijóð, sem Jón 01. hefði ráðgert að kœmu út í 3ja bindi 1. útg.
Syrpa þessi skildist mjer að fundist hefði í blaðarusli eftir Björn Kalman og erþað ekki ólíklegt,
enda í samræmi við það sem Björn sagði mjer eitt sinn, að hann væri að safna enn kvæðum eftir
föður sinn. Þetta er merkileg frjett og syrpan vafalaust girnileg til fróðleiks.
Blessaður - Halldór.
Brjefsauki II. A þingi í gær var til umrœðu rannsókn á jarðhita, fl. - m. Karl Kristjánsson
o.fl.
Jeg talaði þar fáein orð um nauðsyn þess að gera frekari rannsókn á Austurlandi. Vjek að
hinum fundna jarðhita í byggð á Fljótsdalshjeraði o.fl. — A eftir spurði blaðam. Moggans mig
um hvar þetta væri og skaut því að sá sem hefði bent á staðinn væri fyrrv. frambjóðandi Sjálfst.fl.
eystra Gísli Helgason, Skógargerði. Skýrir hann svo frá umrœðunum í Mogganum í dag og segir
að jeg hafi getið þess að jarðhitinn hafi fundist fyrir ábendingu jarðeiganda. Samkv. þessu hefur
Moggadrengurinn flutt þig að Urriðavatni og sennilega gert þig að jarðeiganda þar. Þú ættir að
ganga eftir eignaheim. hjá Mogganum. Tíminn segir að jeg hafi bent á þörfinafyrir að ath.jarðhita
á suðurlandi og bent á að nýlega væri jarðhitaæð fundin á Austurlandi. Oll eru nú skæðin góð.
Halldór.
148