Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Side 153
Indriði Gíslason og ritverk hans
", >j / 'tt
v.,'tedrifiíOísf;isórt A'" ■’ '•'
■■. ''' ■' • ’ r' 'S /'/ trt' 9 -
&/ i- f* 'i -r'-f/'■** r-'rt /Írí y'r/
- ^ '■ g
-garg*
. r
yj , /£('/*
Skógargerðisbók
Skógargerðisbók, sem út kom hjá forlaginu Þjóðsögu 1995, var
fyrst þessara bóka frá hendi Indriða, sem var ritstjóri hennar og
aðalhöfundur, en Örnólfur Thorsson var honum til aðstoðar. Þetta
416 bls. ritverk er eins konar óður til æskustöðvanna. Meginefni
bókarinnar fjallar um Helga Indriðason og Olöfu Helgadóttur,
afa og ömmu Indriða, búskap þeirra í Skógargerði og afkom-
endur, einnig um sameiginlega forfeður þeirra og formæður af
Helgasonaætt, svo og um náttúrufar, ömefni og sögu Skógar-
gerðis. Haft hefur verið á orði að bókin marki tímamót í sögu
slíkra áttahagarita, því hún er fræðilegri en gengur og gerist og
byggir meira á frumheimildum, sem teknar era stafrétt upp, auk
þess að vera lipurlega skrifuð á góðu og kjarnyrtu máli.
Austílrðingaþættir og aðrar frásagnir
Austfirðingaþættir og aðrar frásagnir, eftir Gísla Helgason
í Skógargerði, komu út hjá Máli og mynd (síðar Skruddu)
aldamótaárið 2000 (408 bls.). Indriði Gíslason valdi efnið og
bjó til prentunar, og samdi inngang og nafnaskrár. Meginstofn
þessa rits er Austfirðingaþættir Gísla, sem út komu hjá Þorsteini
M. Jónssyni á Akureyri 1949, en auk þess hefur Indriði bætt við
frásögum og sagnaþáttum eftir Gísla, úr blöðum og tímaritum,
og nokkrum sem aðeins voru til í handriti. Um þessa bók var
ýtarlega fjallað í Ritfregnum Glettings, 11 (1), 2001 og verður
því ekki fjölyrt um hana hér.
Múlasýslur
Múlasýslur, Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenska bókmennta-
félags 1839-1974, komu út hjá Sögufélaginu árið 2000. Finnur
N. Karlsson, Indriði Gíslason og Páll Pálsson sáu um útgáfuna.
Þar hafði Indriði lagt að gjörva hönd við margvíslegan undir-
búning, m.a. við tölvusetningu handrita, þýðingu sýslulýsingar
úr dönsku, yfirlestur handrita og prófarkalestur, eins og fram
kemur í inngangi þeirrar bókar. I framhaldi af þeirri vinnu þýddi
Indriði Lýsingu á norðurhluta Múlasýslu 1745, eftir Þorstein
Sigurðsson sýslumann á Víðivöllum, og var hún gefm út sem
fylgirit Múlaþings 28. árg. 2001 (42 bls.), með inngangi og
skýringum þýðanda og nafnaskrá.
Gísli Helgason
i Skógargerði
Austf irðingaþættir
og aðrar frásagnir
__— -_______
151