Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 155
Helgi Hallgrimsson
Ritfregnir
Skýrslur um sjórannsóknir á Austfjörðum
Rannsóknir á straumum, umhverflsþáttum og lífríki sjávar í Reyðarfirði frá júlí til
október árið 2000.
Hafsteinn Guðmundsson verkefnisstjóri.
Hafrannsóknastofnun, Fjölritnr. 85. Rvík, des. 2001. 136 bls.
Umhverfisaðstæður, svifþörungar og kræklingur í Mjóafírði.
Ritstjóri Karl Gunnarsson.
Hafrannsóknastofnun, Fjölrit nr. 92. Rvík. 2003. 90 bls.
Fram til þessa tíma hefur lítið farið fyrir rannsóknum á sjó eða sjávarlífí í Austijörðum,
enda hefur Hafrannsóknastofnun talið sig hafa öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa
og engin stofnun eða fyrirtæki á Austurlandi hefur talið það hlutverk sitt. Nokkrar athuganir
voru þó gerðar í Reyðarfirði á botnfostum sæþörungum (Strömfelt 1886, Helgi Jónsson 1910,
Munda 1983) og botndýrum (Sparck 1937, Hansen og Agnar Ingólfsson 1993), aðallega í
fjömm.
í tengslum við byggingu álvers við Reyðarfjörð var ijöru- og grunnlíf kannað við athafna-
svæðið 1999 (Agnar Ingólfsson og Jörundur Svavarsson 1999), straumar mældir í mánuð
í apríl-maí sama ár og skrá yfír flóru og fánu fjarðarins tekin saman eftir heimildum (Ari
Benediktsson og Sigmar A. Steingrímsson 1999). Þess má og geta að tekin var saman skýrsla
um „Sjó og sjávarnytjar í Héraðsflóa“ í tengslum við umhverfismat Kárahnjúkavirkjunar
(Hafrannsóknastofnun 2001), aðallega eftir eldri heimildum.
Árið 2000 var bætt um betur með því að Hafrannsóknastofnun tók að sér fjölþættar
rannsóknir á sjófræði og lífríki Reyðarijarðar. Straumar voru mældir samfleytt í tvo mánuði
síðsumars í nokkrum sniðum þvert yfir ijörðinn og hiti, selta og rýni mælt þrisvar í öllum
ftrðinum. Auk þess var lífríkið kannað sérstaklega innan við Hólmanes og sýnum af kræklingi
safnað um allan ijörð. Skýrt er frá niðurstöðum þessara rannsókna í ofangreindri skýrslu, sem
8-manna verkefnishópur Hafró stendur að. Ekki er hægt að greina nánar frá efni hennar, en
nokkur helstu atriði er að fínna í matsskýrslu Alcoa-Fjarðaráls um álverið.
Mjóaijarðarskýrslan er hins vegar til komin vegna kræklingaeldis í firðinum sem hafið
var 1997 á vegum fyrirtækis að nafni Hafskel ehf., og Sigfús Vilhjálmsson á Brekku stendur
fyrir, ásamt fleirum. Einnig er þess að geta að árið 2002 var stofnað til stórfellds laxeldis
í sjókvíum í Mjóafirði, en litlar rannsóknir hafa verið gerðar í sambandi við það, þar sem
Umhverfísráðuneyti taldi ekki ástæðu til að það færi í umhverfismat (sbr. greinina „Er fiskeldi
framtíðin?“ í Austur-Glugga, 31. jan. 2002). Nú hefur þetta laxeldi lagst niður.
Rannsóknir í Mjóafirði fóru líka fram árið 2000. I skýrslunni eru 6 ritgerðir eftir jafn
marga höfunda. Karl Gunnarsson ritar inngang og yfirlit urn rannsóknirnar og helstu nið-
153