Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 9
Merkustu blöð landsins — in spe — „Tíminn" og „Spegillinn", hafa orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að fá að flytja myndaflokka af hinum nýkjörna lögjafnaðarnefndarmanni vorum.
Hefir „Framsókn" þar að vanda verið giftudrjúg með mannaskiftin. Því þótt Einar kunni að
vita lítið eitt meira í lögum lands vors, sem vafasamt er, er hann aftur á móti með öllu ókunnur í er-
lendum stórborgum og meðal erlendra stórmenna. Hann hefir aldrei farið til Frakklands, aldrei kom-
ið til Bretlands, nema nokkrum sinnum í kjallaraknæpu í Leith, og aldrei litið neina negramaddömu
girndarauga. Eru og myndir af honum heldur ekki víða kunnar, hvað ei er að furða, þar sem hann
hefir ekki setið fyrir nema einu sinni, í gamla daga hjá Daníel og í annað sinn hjá Pjetri. Er sú fyrri
mynd orðin máð, en sú síðari sögð með öllu glötuð.
Má því telja mikinn sóma fyrir land vort, bæði út á við og inn á við, hve vel hefir tekist með
þessa nefndarskipun, er hinn mikli mentafrömuður og „globetrotter" hefir tekið að sjer að skipa þenn-
an vandasama en virðulega sess. Mega hinir dönsku kollegar nú óhætt líta upp til vor, sem fátt hafa
sjeð og ekkert farið, nema fám sinnum skrölt milli danmerkur og Islands. Háum fjöllum, fossum og
fagurmyntum löxum hæfir framkoma hins víðförla vegfaranda. Vjer erum stoltir!
(I. 3.)
5