Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Blaðsíða 26

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Blaðsíða 26
(II. 12.) Á hærri stöðum. „Snáfaðu strax upp í Stjórnarráð, Eyvindur. Hafðu tal af ráðuneytinu og skrifaðu svo strax grein um alt heila galeríið. Okkur vantar grein í blaðið. Fljótur nú“. Þetta hrópaði aðalritstjórinn til mín á síðasta sumardag, og sá jeg þann kost vænstan að hlýða tafarlaust, því annars átti jeg víst að verða rekinn frá blaðinu, og ekki vildi jeg verða fyrir því núna undir veturinn. Segir nú ekki af ferð minni fyrr en jeg kom í Stjórnarráðið og mæti þar einhverjum full megt- ugum. „Hvar eru hinir nýju?“ spurði jeg. „Við höfum hjer annað að gera en lesa soleiðis bækur“, svar- aði sá mektugi. „Auðvitað, en hvar eru ráðherrarnir nýju?“ „Þeir eru nú ekki nema þrír, og jeg held það sje fjandans full nóg“. „Veit jeg það, en þeir eru nýir af nálinni samt, og jeg þurfti endilega að tala við ráðunautið“, sagði jeg. „Það er nú ekki nema einn ráðherrann viðstaddur“. „Já, en hvar eru hinir?“ „Morgunblaðið og Vísir segja, að Magnús sje sigldur til að sýna sig og sjá aðra, svo að það er líklega satt, en Tryggvi stendur í flutningum, og var rjett í þessu að leiða síðasta ungviðið yfir Gjallarbrú, en svo köllum við hjerna brúna milli Laufáss og ráðherrabústaðarins“. — Að svo mæltu vísaði hann mjer á dyr, — þó ekki útidyrnar, heldur á dyr Jónasar þess, er nú stjórnar guðs kristni á landi hjer og auk þess svo mörgu öðru fleiru. Þegar jeg er búinn að berja og heyra sagt „kom inn“, lauk jeg upp hurðinni á þeirri rauðu — þar er sem sje alt fóðrað með rauðu — lit blóðs, elds og blygðunar — á skrifstofu Jónasar. Þegar jeg kom inn, gaf mjer á að líta. Aldrei hefi jeg sjeð tígulegri sjón, og hefi jeg þó sjeð sitt af hverju. Þar lá sjálfur ráðherrann í allri sinni lengd uppi á legubekk og var í óða önn að stjórna rík- inu, bara öllu íslenska ríkinu, þar með taldar Þingeyjarsýslur og Vestmannaeyjar. Jeg heilsaði hséversklega og stamaði eitthvað á þá leið, að mjer þætti verst ef jeg ónáðaði, því nóg væri víst að gera. „Já, nóg er til að sinna“, svaraði ráðherrann, „alt í niðurníðslu eftir fráfaranda, og blessað föð- urlandið okkar allra eins og ógróin jörð, þ. e. a. s. flag. En „alvarleg störf á morgun“, eins og Har- aldur segir, og mjer þykir bara ekki nema vænt um að þið komið hingað til að rabba við mig, þessir fyrverandi kollegar mínir, sem enn eruð ekki nema blaðadrengir. Jeg meina drenglyndir blaðamenn, þeg- ar jeg segi blaðadrengir, sbr. fardrengir, eins og Grimsbylýðurinn var kallaður á gullöld lslendinga“. „Jeg kom nú fyrst og fremst til þess að óska til hamingju með upphefðina“, mælti jeg. „Já, þetta er jeg nú orðinn, þó jeg væri ekki annað en óbreyttur alþýðumaður fyrir nokkrum ár- um“, mælti Jónas og brosti ástúðlega. „Hugsa sjer“, sagði jeg. „Og aðeins hás. . . .“ jeg ætlaði að segja, .... og aðeins háseti á þjóðar- skútunni, .... en jeg hætti við það, því jeg var ekki viss um, að það væri heppilegt nú að minnast á háseta og hásetaverkföll á þessum stað. - . ■ *■ . „Mjer þætti gaman að heyra af yðar eigin vörum, ráðherra minn, hvað hefir komið yður áfram í lífinu, og það með þessari líka litlu fart, því jeg ætla að skrifa hvatningargrein til ungra manna og taka sem dæmi ýmsa heimskunna menn, svo sem yður fyrst og frernst, og svo ef til vill t. d. Rockefeller, Júdas og Robespierre". „Víst er það göfugt starf, að uppfræða og örva æskulýðinn, Eyvindur minn, en það þarf að ger- ast með rjettu hugarfari. Það dugar djöfulinn ekki að æsa upp einstaklingsframtakið í þessum piltum“. „Rjett segir þú, hinn frómi, yðar excellence“,svaraði jeg, „en jeg óttast ekki, að þótt þjer segðuð frá yðar lífsreynslu, að það, út af fyrir sig, mundi leiða ungdóminn í þessháttar glötun“. „Sje mínu fordæmi fylgt og það ekki fært út í öfgar, eins og svo oft hefir átt sjer stað, þegar Pjetur og Páll hafa ætlað sjer að feta í fótspor mín og minna líka, þá er öllu óhætt. En, eins og þjer vitið, Eyvi minn, þá er það ekki vani minn að tala mikið um sjálfan mig. Því ef jeg gerði það, gæti það ekki vel orðið annað en hrós, ef satt skal segja. En jeg er svoleiðis gerður, að jeg get ekki sagt annað en sannleikann og jeg hata alt sjálfshól. Svo þjer sjáið, að þjer hafið komið mjer í dálitla klípu með þessum spurningum yðar“. Jeg þagði og dáðist að orðum ráðherrans, en hann hóstaði dálítið og mælti síðan: „En eins og þjer drápuð á, þá er ekkert jafn uppörvandi og göfgandi fyrir unga menn, eins og að lesa æfisögur — eða þó ekki nema æfisögubrot — mikilmenna, og þess vegna held jeg það væri rangt 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.