Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 11

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 11
úr vasa vorum skrautprentað samverkamannsskírteini. „Ritstjórarnir þorðu ekki sjálfir", bæt- um vjer við, til frekari skýringar. „Nú, það var was anders; djeskotans sómasamlegt blað, Spegillinn. Það er þá í stuttu máli sagt, að þetta fjárans bölv og ragn er orðið hreinasti þjóðarlöstur hjá okkur Islendingum, ekki síst hjer á Landsbókasafninu. Það mun vera eina listin, fyrir utan Grænlandsrövl, sem vjer stöndum framarlega í, á alþjóða-mælikvarða. Með þessum fyrirlestri mínum vildi jeg reyna að kenna þessum horngrýtis þorskhausum að bölva vísindalega, en fyrsta ráðið til þess er að útskýra fyrir þeim uppruna alls þess fjölskrúðuga orðasafns, sem vjer eigum í þessari grein málsins. Jeg hef tekið öll nöfnin á gamla bakaranum til athugunar, og komist að þeirri niðurstöðu, að af þeim sje aðeins þrjú, sem mega teljast officíel, það er að segja, sem myndu verða tekin í Stjórnartíðindi, firmaskrár og önn- ur lögformleg dókúment. En öll hin eru meira eða minna gælunöfn, sem menn nota, þegar þeir vilja svo sem eins og hafa kauða góðan. Uppruna þessara nafna hef jeg fundið af skarpleik mínum — þó jeg segi sjálfur frá —, og hef ekki hikað við að grafa fyrir rætur þeirra í ýmsum málum, sem hjer munu lítt kunn, svo sem miðalda-esperantó og forn-há-volapiik, ennfremur bantú-negrínsku og standard-búsk- mennsku, auk vitanlega gjörvallra Evrópumála, eldri sem yngri. Þó er eitt nafnið þannig, að jeg þori ekki að fullyrða um uppruna þess með vísindalegri vissu, enn sem komið er, en það er nafnið Kölski, eða, rjettara sagt, er það í þrem myndum: Kolli-Kölli-Kölski. Guðbrandur Vigfússon meinar, að það standi í sambandi við kol, en þá tilgátu álít jeg ótæka; maður þarf ekki annað en líta á núverandi kolaleysi, því gamli maðurinn þekkir sína, og myndi aldrei látaslíkt viðgangast, ,ef hannrjeðinokkruumþávöru. Nei, orðið giska jeg á, að sje skylt orðinu kollur, sbr. þegar Leirulækjar-Fúsi segir „blessaður glókoll- urinn“ um þann hornótta". „En hvað er þá um þjóðnýtinguna á bölvinu?" spyrjum vjer. „Skiljið þjer það ekki, bjevans þöngulhausinn, að bölv og ragn eru framleiðslutæki? (Vjer skiljum ekki). Það fram- leiðir bölvun yfir náungann. Og þess vegna vil jeg stinga uppá því, ef þjóðnýting fer að verða almenn, að bölvið sje þjóðnýtt líka, á þann hátt, að skipaðir sjeu sjerstakir ríkisbölvarar, sem bölvi fyrir alla hina, en prívatmönnum sje bannað að bölva fyrir eigin reikning. Þetta er svo ofur einfalt, bara ef lög- unum er hlýtt“. „Væri þá ekki ráð að fela þetta prestum landsins, nú þegar þeir eru alveg hættir að hóta mönnum helvíti og kvölunum?" spyrjum vjer. „Því ekki það“, segir doktorinn, „ekki er þeirra of mikið, þó þeir fái einhverja smá-aukagetu“. „Jæja, þakka yður nú fyrir þægilegheitin, herra doktor“, segjum vjer, „og verið þjer nú sælir“. „0, farið þjer í galopið, sjóðbullandi, kolsvart, gapandi, hurðar- laust ....“. (Lengra var doktorinn ekki kominn, þegar hurðin skall á hælum vorum). Ragnar. (Tilv. Ríkisbölvari). Snjóbíllinn. (n 2) Meður því að Spegillinn er eitt veðurheftugt blað, sem allir vilja lesa, bið jeg hann fyrir línur þessar, til þess sem flestir viti, hversu langt á leið verkfræði er komin á voru landi og virðist vera að komast fram úr kúnstum og kunnáttu Ameríkumanna. Eftir að jeg heyrði að snjóbíllinn var tekinn til starfa í vetur, fór að glaðna yfir mjer, því austur í Flóa þurfti jeg að komast, því jeg átti þar tvö hangi- kjötskrof, sem jeg þurfti að nálgast. Jeg tók mjer far í bíl austur, var sæmilega nestaður af mat og pinnaverki, þótt jeg byggist við fljótri ferð, góðri færð eftir plóginn eða snjóbílinn, þar sem auk hans voru um 20 manns í vinnu, honum til aðstoðar og að dírígera bákninu. Mjer fór ekki að lítast á, þegar jeg heyrði bílstjór- ann tala um, að nú yrði að fara út af veginum, því nú byrjaði brautin eftir snjóplóginn og væri hún 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.