Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Síða 58
Sauðnaut. m.m
Einn hinn merkilegasti viðburður, sem gerst hefir á landi voru (sjerstaklega af því hann hefir
enn ekki gerst og síst á landi voru), er Grænlandsförin, sem hafin er til þess að bjarga þeim sorglegu
leifum, sem enn kunna eftir að vera af íslensku þiððerni vestanhafs. Þetta vestanhafs mega menn þó
ekki skilja svo, sem það sje í Canada. þar sem Bíldfell býr, sá, sem kendur er við 1000 dollara-landráð-
in, öðru nafni auglýsingarnar fyrir Manitoba 1930, og snítalarúmin 400. Hjer er sem sje um að ræða
Grænland. þangað, sem Eiríkur rauði fór forðum, faðir Leifs hins norska og heoona, sem Bandaríkja-
menn ætla nú að skila okkur aftur næsta ár, eftir meir en 1000 ára brúkun. með þakklæti fyrir lánið.
Ársæll heitir maður, Árnason. Hann er þjóðrækinn, svo með afbrigðum má telja, og ritfær í
betra lagi. Þessir tveir kostir mannsins hafa runnið saman í blaðagreinar eigi all-fáar um skepnur, er
sauðnaut nefnast og ekki finnast lengur á íslandi. Eins og nafnið bendir á, eru skepnur þessar afkom-
endur sauðs og nauts (er það nú siðferði!), og til þess að gera ófróðum þetta lítið eitt skiljanlegra má
benda á hliðstætt fyrirbrigði, er vjer höfum enn hjer á landi, sem sje ráðanaut, sem eru afkomendur
ráða (þ. e. hafurs) og nauts, og eins og sjá má ennfremur af nafninu, eru þetta naut, sem ráða öllu
hjer á landi, og gætu bví alt eins vel heitið landráðanaut. En áfram með hin nautin. Skepnur þessar
yrðu ekki þungar á fóðrum hjer á landi, þar eð þær nærast á engu nema ís, og hafa fundið það át upp
löngu áður en ís varð móðins sem eftirmatur í betri veislum. Er því tilætlunin, er hingað kemur, að
beita þeim á Vatnajökul, því ekki er að púkka upp á annan ís, ef veðráttan heldur áfram að vera eins
og hún var hjer síðastliðinn vetur. Það skyldi þó kannske vera í sænska frystihúsinu, en hætta er á, að
það taki lífið með álíka ró og sænskir flugmenn eru þektir að gera.
Til sauðnautaleiðangursins hefir verið leigður dreki einn mikill, er áður hjet „Sigurður Fyrsti“,
en var seinna, af góðum ástæðum, skírður upp og hlaut þá nafnið „Sigurður Síðasti og Versti“. Er tal-
ið, að þar sje rúm fyrir 12 sauðnaut fyrir utan mannskapinn, þ. e. a. s. ef þeim kemur sæmilega sam-
an. Meðal skipsmanna er áðurnefndur Ársæll, vopnaður með skammbyssu og dýrafræði Bjarna Sæ-
mundssonar, og á hann að hæna nautin að, en skjóta þau niður í hakkabuff, ef þau vilja ekki láta segjast.
54