Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 120

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 120
og fórum eins og skot, alla leiS austur að Apavatni. Við höfðum steingleymt að þvo okkur og raka, um morguninn, þegar við fórum af Hlemmnum og gripum við því tækifærið til að gera alt okkar toilett hjer, því nú ætluðum við að heimsækja Laugarvatnsskólann. En helgi staðarins er svo mikil, að Böðvar hrepp- stjóri hefir svo fyrirskipað, að þangað megi enginn líta óþveginn, heldur en til Helgafells, forðum daga. Á Laugarvatni fengum við bróðurlegar viðtökur, eins og vænta mátti og hjeldum við svo þaðan í einum hvelli á Þingvöll. v Eins og alt skólafólk veit, þá er Þingvöllur langfrægasti sögustaður hjer á landi, síðan Alþingis- hátíðin var haldin þar í hitt-hitt-eðfyrra, en fyrir þann tíma var það Litla-Eyrarland — þar er nú dýrð- in dalandi, drottins hjá bjánum. — Hverfult er heimsglysið, má segja. En svo er girðingunni miklu og Guðmundi Davíðssyni fyrir að þakka, að hróður Þingvallar er ekkert farinn að fölna enn þá, þrátt fyrir það, að allir eru nú búnir að gleyma hátíðahöldunum og hesta-atinu. — En Guðmundur uppdagaði staðinn, endur fyrir löngu, eins og Leifur heppni uppdagaði Ameríku fyrr meir, en sá er munurinn, að Guðmundur tók tryggð við staðinn og týndi honum ekki aft- ur, eins og fornmenn týndu Vínlandi hinu góða og ljetu svo Columbus hrifsa það frá sjer, þegar þeir máttu síst vera án þess. Sýnir þetta, að ekki eru íslendingar enn dauðir úr öllum æðum, og varla eru þeir Leifur og Karlsefni slíkir sem Guðmundur Davíðsson. Um alt þetta má lesa miklu nánar í íslend- ingabók hinni nýju, eftir Arnór Framsóknarfræðara. Á leiðinni til Þingvalla er bær sá er Gjábakki heitir, þar stönsuðum vjer drykklanga stund, fórum svo þaðan, sem leið liggur, yfir hlaðvarpann í Valhöll og sjónhendingu á Hofmannaflöt. Hofmannaflöt er fagurt mýrarsund, vaxið fífu og gulstarungi; mætti sjálfsagt fóðra meira en eitt þúsund kýr á heyfallinu af flæðiengi þessu, ef laglega væri á haldið, t. d. keyptar nokkrar tunnur af síld til fóðurdrýginda, en gæta yrði þá þess, að sú síld væri úr Einkasölunni sálugu, því að annars mundi ráðunautur búnaðarfélagsins ekki geta mælt með henni. En eins og allir bændur vita, þá dettur kúnum ekki í hug að leggja sjer til munns aðra síld en þá, sem ráðunautin hafa gefið meðmæli sín. Vestan við Hofmannaflöt er ansi hugguleg, lítil hæð og þótti okkur hún svo interessant, að við skoðuðum hana í krók og kring; en með því að hún er ekki sýnd á landabrjefi okkar og ekkert er sagt um hana í Jónsbókinni úr Ystafelli, þá sáum vér af visku vorri, að henni mundi aldrei hafa verið nafn gefið, og vildum við því bæta úr þessu, sem allra fyrst. Tókum við því hálfflösku af Landa, ljetum marga dropa drjúpa í kollinn á hæðinni og skírðum hana Stalin, því hún stendur eins og foldgnátt fjall og drottnar yfir hinni endalausu flatneskju, alt í kring. Reyndar hefir okkur verið sagt síðar, að fjall þetta hjeti Meyjarsæti, en ekkert öktum við það og heimtum að okkar nafn gildi hjeðan í frá að eilífu, enda er það bæði fallegra og smekklegra. Þegar við komum inn í Víðiker, sáum við reykjarmökk mikinn. Mun þar vera stór goshver, þótt ekki sje hann sýndur á íslandskortinu, en ekki höfðum við tíma til þess að gera okkur ódauðlega með því að rannsaka þetta fyrirbrigði og skrifa um það í blöðin. Af Tröllahálsi ókum við sjónhendingu að Surtshelli og inn í hann, alla leið þangað sem Hellismenn höfðu svefnkamers sitt. En eins og menn vita, þá voru Hellismenn nokkrir skólapiltar, sem struku úr Samvinnuskólanum, til þess að þurfa ekki að taka próf og lögðust þeir þarna út og kyntu sjer allræki- lega fjármál bænda, til þess að geta orðið leiðtogar stjettarinnar. Eftir að hafa skoðað hellinn allan, bæði í krók og kring, lögðum við af stað. Var nú allur kengur kominn burt úr bílnum og þaut hann, sem fugl flygi, yfir Hallmundarhraun, Þorvaldsháls og Arnarvatns- heiði. Keyrðum við yfir nokkrar tófur, sem ekki voru nógu fljótar að forða sjer undan okkur; en eins og menn vita, af kenslubókum, þá breyta tófur litum, eftir árstíðum og eru því altaf samlitar umhverfinu. Gátum við því ekkert gert að því þó við grönduðum blessuðum skepnunum, en ferðin svo mikil á bílnum, að ekki voru tiltök að stoppa hann, fyrr en við Rjettarvatn. Nafnið á vatni þessu mun koma af því, að ein- hvern tíma mun rjettur hafa verið settur þarna og líklega að þeir Hellismenn hafi þar verið rjettaðir, enda þótt Arnór geti þess ekki í íslendingabók sinni. Lögðum við nú norður Stórasand og segir ekki af ferðum okkar fyr en við komum á Akureyri, þar keyptum við viðbótar matvæli, því talsvert var nú farið að ganga á nesti okkar, það er við fór- um með úr Reykjavík. i Þegar við ókum um Bárðardalinn varð okkur starsýnt á stórbýlið Hriflu. Eru þar slot stór, sem á Laugarvatni, alt bygt úr sementi frá Jóni Þorlákssyni og „þar til fjalla frammi fæddist Jónas áður“, eins og skáldið sagði forðum daga, þegar það var þarna á ferðinni. 116
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.