Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 150

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 150
/ / Arbók Islands 1934. Árið hófst, eins og svo oft endranær, með nýársfagnaði Sambands íslenskra Timburmanna, og gengu þeir að því hófi loknu í Alþýðusambandið, að undangengnum hótunum um útilokun frá allri vinnu framvegis. Óttuðust þeir „harðfylgi samtakanna" og lúffuðu. Misbresta-ár til lands, lofts og sjávar. Jónas Þorbergsson samt útvarpsstjóri. Obitus politicus Tryggva Þórhallssonar. Skeði á þann hátt, að á öndverðu ári var stofnaður nýr stjórnmálaflokkur og kallaður Bændaflokkur. Veik þá Tryggvi úr Fram- sóknarflokknum, og varð til þess, að hann fjekk fleiri kveðjur en einum manni væri fært að rísa undir, að því er hann sjálfur sagði. Hitt sagði hann ekki sjálfur, að kveðjurnar voru allar frá framsóknar- mönnum, en þó sjerdeilislega Strandamönnum og voru hinstu kveðjur. Nefndur Bændaflokkur virtist í fyrstu ætla að gera heldur litla fígúru við kosningar, en svo fór, að hann kom þremur slíkum að, nefnil. Hannesi, sem er móðurskip flokksins, og Briem og Magnúsi T., sem eru eftirbátar Hannesar og virðast una því vel — Magnús þó síður. Fyrra hluta árs voru óeirðir miklar og umbrot innan flokkanna, og komst siðferði manna í pólitíkinni á lægra stig en áður hafði þekkst, og mátti með sanni segja, að stjórnmálamenn styngju samvisku sinni svefnþorn, þeir sem ekki höfðu þegar stungið henni líkþorn. Stjórnin hjekk í lausu lofti, og var það alment álit andstæðinga hennar, að það væri mjög við hennar hæfi. Forsætisráðherra, sem enn var, bauð sig fram til þingmennsku í Vestur-ísafjarðarsýslu — utan flokka, því enn var í nokkurri óvissu, hvorum betur myndi veita. Náði hann kosningu engu að síður, og þrátt fyrir ófullkomna greinargerð fyrir sannfæringunni, og kusu kjósendur hann „uppá lóna“, sem síðan er kallað. Snemma á árinu fór nýr sendiherra stjórnarinnar, Gunnlaugur að nafni, ungur maður og ekki almennt þekktur, en efnilegur talinn, til markaðsleitar í Eystrasaltslöndum. Gerði hann kaupmanna- höfn í danmörku að aðalbækistöð sinni eða óperasjónsbasis. Barst hann mikið á með höfðingjum, og mátti segja, að yfirvöld staðarins bæri hann á höndum sjer og síðast til skips, er hann venti til Sögueyj- unnar að lokinni markaðsleitinni, sem þó bar engan árangur, enda hafði hann starfað hjá Síldareinka- sölu ríkisins. Tjeð Síldareinkasala lauk einnig störfum á árinu við sama orðstír og áður hafði fylgt henni; þó er málaferladeildin enn starfandi úti í löndum. Vígahnöttur sást í kjördæmi Eysteins, hinn 13. febrúar. Var hann rauður og þrútinn og stóð aftur úr honum blár bensínloginn. Var þetta um það leyti dags, er Eysteinn ætlaði að fara að borða litla skattinn, og gaf þessi samstilling viðburðanna hon- um hugmyndina um bensínskattinn. Nokkru fyrir kosningar fann Stefán Jóhann það út og skrifaði um í blöðin, að ýmislegt væri enn ógert í Reykjavík. Er óhætt að segja, að fá tíðindi hafi vakið jafn almenna og óskoraða eftirtekt og skelfingu, og var sem menn vöknuðu við vondan draum. Fjekk Jón Þorláksson öll völd í Sjálfstæðis- flokknum í hendur Ólafi Thors sárnauðugum, og hætti við að bjóða sig fram til þings, til þess að geta gefið sig óskiftan við bæjarmálum. Var þetta orsök stærri tíðinda, því samkvæmt ummælum andstæð- inga Jóns, ætlaði hann að veita eitruðu drykkjarvatni til höfuðstaðarins, en hætti þó við, því kosningar stóðu fyrir dyrum. Engu að síður varð þetta upphaf hinna almennu vörusvika, er mjög blómguðust á árinu og veittu mörgum atvinnu. Stóð þá hagur lækna með svo miklum blóma, að þeir sáu sjer fært að halda sýningu á matvælunum og þeirra aðskiljanlegu verkunum. Fyrir kosningar skoraði Hermann Magnús Guðmundsson á Hólminn í Skagafirði og skaut ótt og títt á snöggu blettina, en Magnús þvæld- ist fyrir og lagði kollhúfurnar og höfðu Skagfirðingar litla skemtun af. Landbúnaður valt á ýmsu á árinu. Peningur fjell víða og hvarf sumstaðar fyrir fullt og allt, svo sem í Landsbankanum. Kýr fanst rekin af sjó. í Kefla- vík og vildi enginn eiga. Loks var það ráð tekið, að skrifa eftir markaskrám úr öllum heiminum og kom það þá í Ijós, að þetta var reyndar kýr vestan úr Bandaríkjum, sem strokið hafði úr landi undan afurðaeinkasöluskipulagsfargani Roosevelts-stjórn- arinnar. Þótti þetta illur fyrirboði og varð það líka. Helsta nýmæli ársins í landbúnaði var það, að láta kýr jeta gamalær. Gerði þetta lukku, nema helst hjá ánum. Snemma á árinu komu upp eldar miklir í Vatnajökli. Voru það jarðeldar. Varð þá Skeiðarárjökull svo óttasleginn, að hann hljóp í sæ fram og 146
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.