Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 13

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 13
Kleifar í Kaldbaksvík A Kleifum bjó Jón Pálsson, Jónssonar í Kaldbak. Hann bjó á Kleifum frá 1849 til 1898. Kona hans var Rósa Andrésdóttir frá Veiðileysu, Guðmundssonar. Meðal barna þeirra, var Guð- mundur á Skarði. Meðal barna Guðmundar á Skarði voru: 1. Svanfríður kona Ingimundar frá Byrgisvík. 2. Guðrún kona Guðmundar Guðmundssonar á Kleifum á Sel- strönd, nú í Hafnarfirði. Eyjar Á eyjum bjó Loftur Bjarnason (ríki), Bjarnasonar í Kaldbak og á Ósi. Loftur bjó á Eyjum frá 1858 til æviloka 28. nóv. 1899. Kona hans var Anna Bjarnadóttir á Eyjum, Guðmundssonar. Börn þeirra 1. Gestur á Eyjum (barnlaus). 2. Sigríður Anna fyrri kona Guðmundar á Skarði. Börn Sigríðar Önnu voru Loftur á Eyjum og Isafirði og Guðrún fyrri kona Jóns Kjartanssonar í Asparvík. Asparvík Þar bjó Þorsteinn Eyjólfsson, Gíslasonar í Húsavík. Þorsteinn bjó í Húsavík 1859 til 1861, í Asparvík 1863 til 1867, síðar hús- maður á ýmsum stöðum við Steingrímsfjörð. Kona hans var Guðlaug Grímsdóttir frá Víghólsstöðum á Fellsströnd, Guð- mundssonar. Börn þeirra 1. Sigríður, átti Albert Jónsson, fóru til Vesturheims. 2. Jón á Gestsstöðum. Meðal barna Jóns á Gestsstöðum voru Guðjón trésmiður á Hólmavík, Guðlaugur í Lyngholti, Jón Bjarni á Gestsstöðum og Magnús í Arnkötludal. Brúará. Brúará er í eyði 1866 og 1867, nytjuð frá Eyjum. Reykjarvík I Reykjarvík bjó Þorbergur Björnsson, Björnssonar á Klúku í Bjarnarfirði. Bjó í Reykjarvík 1863 til 1868, síðan húsmaður þar 11

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.