Strandapósturinn - 01.06.1978, Blaðsíða 77
og eru samhljóða, en hitt, með ábúandans skuldbindingu á
teiknaðri hefur eigandi.
9. Þessu byggingarbréfi til staðfestu, er mitt undirskrifað nafn
og hjásett signet.
Skarði 4. ágúst 1884.
Kjartan Guðmundsson.
Þórarinn Hallvarðsson.
0tbyggingarbréf
Þar eð Magnús Kristjánsson bóndi á Hafnarhólmi, hefur ekki
viljað þettað ár 1894, veita móttöku byggingarbréfi, eða ganga
inn á neina skriflega samninga við okkur undirskrifaða eigendur
að V\ parti í jörðinni Hafnarhólmi í Kaldrananeshrepp í
Strandasýslu, sex hundruð að fornu mati og ennfremur ekki
viljað gjalda eftir téðan jarðarpart ákveðna landsskuld, heldur
ekki endurbætt neitt af húsum, sem jarðarparti þessum tilheyrir.
Þá byggjum við hér með út bóndanum Magnúsi Kristjánssyni
og óheimilum honum allt það, sem téðum jarðarparti tilheyrir í
næstkomandi fardögum 1895 og má hann búast við, að mega
svara fullu álagi á allt það er ofanskrifuðum jarðarparti tilheyrir
og ekki er í forsvaranlegu standi, svo framarlega að hann vill ekki
veita móttöku byggingarbréfi og ganga inn á skriflega samninga,
sem við kunnum að setja honum með byggingarbréfinu.
Ásmundarnesi, 1. desember 1894.
Guðmundur Kjartansson
Jón Kjartansson
75