Strandapósturinn - 01.06.1978, Blaðsíða 16
víðar. Kona hans var Guðrún Sigfúsdóttir á Skarði, Guð-
mundssonar. Synir þeirra Guðmundur á Hafnarhólmi
(barnlaus) og Jón í Asparvík.
2. Jón Amgrímsson, Jónssonar í Krossnesi. Bóndi á Skarði 1860
til 1888. Síðan bóndi á Svanshóli til æviloka 13. febr. 1894.
Kona hans var Guðríður Pálsdóttir frá Kaldbak, Jónssonar.
Börn þeirra. Arngrímur í Reykjavík, Jóhann á Kleifum á
Selströnd, Sigrún bústýra á Bassastöðum, Ingimundur á
Svanshóli, Elísabet, átti Sæmund Jóhannsson í Aratungu,
Guðríður, átti Áskel Pálsson á Bassastöðum, Halldór á
Kaldrananesi og víðar.
Bakki
Þar bjó Ólafur Jónsson, Jónssonar á Víðivöllum. Bóndi eða
húsmaður á Bakka 1866 og 1867. Fyrri kona Ingibjörg Björns-
dóttir frá Bjarnarnesi, Björnssonar. Dóttir þeirra var Magndís,
átti Benjamín Ólafsson á Ásmundarnesi. Seinni kona hans var
Valgerður Björnsdóttir, alsystir fyrri konunnar. Meðal barna
þeirra var Ólafur, fór til Vesturheims, varð bankaeigandi og
stjórnaði bankanum. Glæsilegur maður og mikils metinn.
Kaldrananes.
Þar var þríbýli.
1. Jón Guðmundsson, Guðmundssonar á Kaldrananesi. Bóndi á
Kaldrananesi frá 1852 til æviloka 7. maí 1887. Kona hans var
Ingibjörg Einarsdóttir frá Víðivöllum, Jónatanssonar. Börn
þeirra. Lýður á Kaldrananesi og víðar, Kristín, átti Björn
Björnsson á Hólmavík, Þorbjörg, átti Eyjólf Stefánsson frá
Hrófá, Guðrún, átti Halldór Jónsson á Kaldrananesi, Ingi-
björg, átti Kjartan Ólafsson á Kaldrananesi.
2. Árni Guðmundsson, Guðmundssonar á Kaldrananesi. Bóndi
á Kaldrananesi frá 1855 til æviloka 23. des. 1884. Kona hans
var Anna Guðmundsdóttir á Kaldrananesi, Arasonar. Þau
voru barnlaus.
14