Strandapósturinn - 01.06.1978, Blaðsíða 66
maður hennar. Kona Þorgeirs í Hvassafelli var Hallbera Ein-
arsdóttir, Arasonar, Þorgilssonar, Arasonar, Mássonar. Þessarar
ættfærslu er hér getið til að sýna hve stórættaður Ásgrímur
Bergþórsson var og af þeirri frændsemi leiddu tengsl hans og
fylgi við Sturlunga.
Kona Ásgríms var Margrét Þorbjarnardóttir, Bergssonar og
konu hans Oddnýjar Pálsdóttur, Þórðarsonar, Þorvaldssonar,
Kjartanssonar. Móðir Oddnýjar var Guðrún dóttir Brands
biskups. Amma Oddnýjar var Sigríður dóttir Hafliða Mássonar.
Af framanskráðu sést, að þau hjón Ásgrímur og Margrét hafa
verið stórættuð.
Margrét var skörugleg kona og mun það hafa komið í góðar
þarfir, þar sem hún varð að stjórna stóru búi meðan bóndi
hennar var í herferðum, fyrst móti Þorvaldi Snorrasyni í Vatns-
firði og varð þá að dvelja langdvölum fjarri heimili sínu vegna
valds og ofsa Þorvaldar og einnig i mörgum herferðum með
frændum sínum Sturlungum.
Ásgrímur var vitur maður og talinn forspár. Það kemur þrá-
sinnis fram, að Ásgrímur vildi leysa deilur manna og gekk oft
hart fram í að leita um sættir.
Vegna frændsemi við Sturlunga varð hann oft að vera í her-
ferðum með þeim og þá oft á móti vilja sínum.
Ásgrímur var valdamaður og einn af höfðingjum þrettándu
aldar, svo vinsæll var hann og mikils metinn, að það náði inn í
raðir þeirra er hann var í mótgangi við.
Hann var foringi og fulltrúi Strandamanna og leituðu þeir
hans fulltingis er með þurfti. Svo heiðarlegur var hann, að hann
neitaði Þórði frænda sínum um liðveislu, því ekki vildi hann
rjúfa eiða sína við Kolbein, þó nauðungareiðar væru.
Mér hefur fundist Ásgrímur svo sérstæður persónuleiki á
þeirri óöld (Sturlungaöld) er hann lifði á, að gaman væri að
minnast hans með því, að draga fram þau brot úr sögu hans, sem
tiltæk eru og geta lesendur þá einnig fellt sína dóma um hann.
Skal nú fyrst sagt nokkuð frá Jóni presti Brandssyni afa Ás-
gríms.
Það mun hafa verið um 1173 að prestur sá hélt Stað á
64