Strandapósturinn - 01.06.1978, Blaðsíða 19
Hella.
Þar bjó Jón læknir Guðmundsson, Guðmundssonar á Klúku í
Bjarnarfirði. Bjó í Reykjarvík 1855 til 1858. Bóndi á Hellu frá
1858 til æviloka 10. nóv. 1882. Kona hans var Guðrún Ingi-
mundardóttir hreppstjóra á Miðhúsum í Reykhólasveit. Þau
barnlaus.
Sandnes.
Bóndi þar var Einar Gíslason, Jónssonar á Brekku í Gufudals-
sveit. Ólst upp í Barmi hjá Birni Jónssyni og konu hans Ragn-
heiði Sveinsdóttur frá Kleifum og Þambárvöllum, Sturlaugs-
sonar. Fluttist að Kaldrananesi 1828. Bóndi í Sunndal 1833 til
1835. Síðan bóndi á Sandnesi til æviloka 15. ágúst 1874. Þjóð-
hagasmiður. Kona hans var Valgerður Jónsdóttir frá Fagra-
dalstungu í Saurbæ, Bjarnasonar. Meðal barna þeirra voru
Einar á Sandnesi, Jón á Blöndubakka á Skagaströnd, Sveinbjörn
á Sandnesi og Lýður í Kjós, faðir Lýðs á Víganesi við Reykjar-
fjörð.
Bassastaðir.
Þar var tvíbýli.
1. Sveinbjörn Einarsson, Gíslasonar á Sandnesi. Bjó á Skarði í
Bjarnarfirði 1863 til 1864. Bóndi á Bassastöðum 1864 til 1877.
Síðan bóndi á Sandnesi til æviloka 3. nóv. 1883. Smiður.
Kona Valdís Jónsdóttir úr Skoreyjum á Breiðafirði, Jónsson-
ar. Meðal barna þeirra var Jónína, átti Elías Magnússon í
Bolungarvík.
2. Jón Magnússon, Magnússonar á Þiðriksvöllum. Var fyrst við
búskap á Gautshamri. Bóndi á Bassastöðum frá 1864 til ævi-
loka 13. júlí 1877, (drukknaði). Kona hans var Kristín Sæ-
mundsdóttir frá Gautshamri, Björnssonar. Þau skildu. Meðal
barna þeirra var Ragnheiður Kristín, átti Grím Stefánsson i
Húsavík.
Bólstaður.
Þar bjó Einar Einarpson, Gíslasonar á Sandnesi. Bóndi á Bólstað
2
17