Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 25

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 25
Jóhannes frá Asparvík: Skógerð Eitt af vandamálum heimilanna áður fyrr var skógerðin. Þá fengust ekki tilbúnir skór og varð að framleiða þá á heimilinu. Þetta var allmikið starf þar sem margt fólk var í heimili. Oftast voru skórnir búnir til úr húðum af stórgripum og sauðskinnum, ennfremur úr selskinnum. Þar sem fólk var misjafnlega stórfætt, varð að sérsníða efnið eftir því sem við átti og var efni í hverja skó kallað skæði. Þegar átti að búa til skó, voru skæðin tekin, lögð saman langsum á helming og tekið smá skarð eða kría í miðjuna á hvorum enda, þetta var gert til þess að ekki kæmi tota fram og aftur úr skónum þegar búið var að sauma hann, saumar á tá og hæl voru alltaf gerðir á röngunni á skinninu og varpað yfir brúnirnar á skinninu, saumgarn var úr þrinnuðu fínt spunnu togbandi, síðar var hampþráður notaður þegar til hans náðist, hann þótti betri í meðförum. Þegar búið var að gera saum á hæl og tá, var tekinn togþráður, renndur margfaldur saman og skórinn verptur með varpanál, voru þá barmar skæðisins dregnir saman, svo að skórnir féllu sem best að fætinum. Þegar meira var viðhaft og um spariskó var að ræða voru skórnir bryddaðir, var 23

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.