Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 30

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 30
tréskóm, til dæmis var tekið upp úr þeim fyrir hæl og tábergi. Yfirleður var ýmist Bereftleður úr gömlum sjóskóm, eða leður úr húð af hesti eða kú, þetta yfirleður náði vel upp á miðja rist, en svo lá það aftur fyrir hælinn og var þrengra að ofan svo tréskór- inn héldist betur á fætinum. Þegar leðrið var lagt á skóinn, var mjó reim úr svipuðu efni og yfirleðrið lögð með undir naglahausana, þá rifnaði leðrið minna við naglana og svo féll það betur að skónum svo samskeytin urðu vatnsheld, leðrið var neglt á með smásaum og haft stutt bil á milli naglanna. Efnið í tréskóna var úr trjárótum er ráku á fjörur, fyrst var það sagað og höggvið til þar til það tók að nálgast rétta skólögun, þá var skórinn tálgaður með tálguhníf og að síðustu rifinn með háfsroði, skorið var með bjúghníf upp úr honum fyrir hæl og tábergi og það slípað með sama hætti og að utan. Það var frekar seinlegt að smíða tréskó og það hefur máske átt þátt í að minna var um þá en þörf var á, en nóg annað að starfa hjá einyrkja bónda með mörg börn og svo var hitt, að okkur krökkunum þótti erfitt að ganga á tréskónum, þeir voru harðir og óþjálir að ganga á þeim og sérstaklega voru þeir óþægilegir ef þurfti að fara að fé í bröttum skriðum og klettum, innanbæjar og á túni voru þeir ágætir. 28

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.