Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 52

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 52
Enn nær stendur upp af fold, ungur klœðalundur, glerið skorið handar hold hafði að beini sundur. Þegar blessuð börnin sjá blœða sár úr máta, öll upp stóðu í einu þá og af hjarta gráta. Þeirrafaðir petta sjer, þá í blíðu hóti, bráðast gengur, baugaver, börnum sínum móti. Voða slysið síðan sjer, sorgin náði þvinga, strax til húsa barnið ber, blíður sveigir hringa. Með það sama um foldarflet fágaða með prýði tvo reiðhesta týgja Ijet, tjörgubörinn fríði. Rjett inn síðan refasœ randaþór einn keypti, sá í flýti suður að Bœ söðlaljónum hleypti. Skeifnahaukur skjótast rann skatnar sem að hrósa Guðmund lœkni gildur fann, gaukur mána Ijósa. Sá er mjög tilfrœgða fús, fleinaþór, að vonum. Lœknir nú enn nýráðshús norður reið með honum. Langa kvöl sá linaði, lundur móins heiða. Sár upp skar og saumaði saman enda breiða. Og nú greinir öldin stór, jeg í Ijóðum segi, þessi ungi álmaþór er á bata vegi. Læknir þaðan lipur reið, listum mörgum búinn. Aðrar frjettir, fresta heið fer að greina lúinn. Giftist frœgur fleinsbaldur, flestir lýðir hrósa, Guðmunds niður Guðmundur, grundu marar Ijósa. Margur þangað þófajór þandi á sljettum völlum. Stoltur bauð nú stálaþór stórhöfðingjum öllum. Staupasjáinn þambar þjóð þar með geði ríku. Víst tvo daga veislan stóð, var nú gleði að slíku. 50

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.