Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 54

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 54
Ingvar Agnarsson: Færeyingar á Djúpavík og dansarnir þeirra Ég vann á Djúpavík á sumrum frá 1936 til 1939, aðallega í verksmiðjunni, en stundum einnig í sambandi við síldarsöltun- ina. Eitt og annað var til skemmtunar, og margt var til tilbreyt- ingar. Margt fólk kom á vorin að sunnan og fór aftur að hausti. Skip komu og fóru, hlaðin síld. Alltaf var mikið um að vera, þann tíma sem starfræksla stöðvarinnar stóð yfir á hverju ári. Allir höfðu nógu að sinna. Engum þurfti að leiðast. Samheldni var með besta móti, meðal þessa marga fólks. Þegar bræla var á miðum, komu færeyskar skútur stundum inn og lögðust að bryggju. Færeyingar voru ávallt aufúsugestir, glaðir og hógværir í allri sinni framkomu. Eitt var það, sem mér fannst ávallt athyglisverðast og skemmtilegast í sambandi við komu Færeyinganna til Djúpa- víkur: Þeir fundu sér auðan blett á bryggjunni eða á uppfyll- ingunni, mynduðu hring og stigu færeyskan dans, vikivaka, öll skipshöfnin, og sungu færeysk þjóðkvæði og danskvæði, sem sum voru æði löng. Færeyskur dans er fremur einhæfur. Þátttakendur stíga eitt spor til hægri og tvö til vinstri. Þannig mjakast allur hópurinn til 52

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.