Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 80

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 80
Sigvaldi Kristjánsson kennari frá Kjörseyri í Hrútafirði féhirðir, Torfi Guðbrandsson kennari frá Heydalsá í Steingrímsfirði rit- ari. Magnús Guðjónsson lögmaður frá Hólmavík, Ólafur Guð- mundsson framkvæmdastjóri frá Eyri í Ingólfsfirði, Haraldur Guðmundsson bifreiðarstjóri frá Kollá í Hrútafirði og Björn Benediktsson póstmaður frá Ásmundarnesi í Bjarnarfirði. Aðaltilgangurinn með stofnun félagsins var sá, að viðhalda kynnum milli þess fólks sem að heiman var flutt, auðvelda því að koma saman, blanda geði og gleðjast í góðvinahópi. Ennfremur að halda tengslum við átthagabyggðina t.d. með hópferðum heima í héraðið. Það má því segja, að helstu verkefni félagsins fyrstu árin væru eingöngu bundin ýmiss konar félagsstarfsemi, einkum dans- samkomum og skemmtifundum fyrir fólk á öllum aldri. Ekki verður annað sagt en að þessi starfsemi gengi vel og næði þeim tilætlaða árangri að auka kynni og samhug milli þeirra manna og kvenna, sem annað hvort af ráðnum hug eða fyrir tilvik örlaganna höfðu flutt byggð sína. Þeir sem fylgt hafa aldarfjórðungsæviþræði Átthagafélags Strandamanna og átt þar aðild að eiga án vafa margar ljúfar minningar frá skemmtikvöldum, árshátíðum, þorrablótum, sumarferðalögum og öðrum samskiptum við fólk, bæði innan félagsins og heima í héraði. Árið 1967 var stofnað ársritið Strandapósturinn. Ekki voru allir á einu máli um þann þátt félagsstarfseminnar og sýndist sumum sem af lítilli fyrirhyggju væri í þetta ráðist. Hér var í byrjun um bein og aukin fjárútlát að ræða og óséð hverjar viðtökur ritið mundi fá. Aðrir litu svo á að ef þetta lánaðist þá væri um að ræða svo sterkan tengilið milli byggðafólks og borgarbúa að nokkru væri hættandi, og ennfremur að væri vel að ritinu staðið mætti halda þar til haga margvíslegum byggðasögufróðleik, sem að öðrum kosti væri hætta á að glataðist. Strandapósturinn var furðufljótur að sanna tilverurétt sinn og þó fæðingarhríðarnar hafi verið erfiðar sem hin síðari ár er þó 78

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.