Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Page 85

Strandapósturinn - 01.06.1978, Page 85
Hermann Búason: „Betri þóttu handtök hans . . .“ Kostur er það við ellina, þegar óhægt gerist um ferðalög, að hægt er að láta hugann reika um fjarlæga staði og bæði aftur í tímann, og til framtíðarinnar einnig. Oft verður mér hugsað til liðinna æskuára, gamalla atvika, sem voru krydd lífsins á þeirri tíð. Það skaðar víst engan þótt ég rifji upp eitt atvik frá æskuárum mínum. Það var fyrir tæpum sex áratugum. Þá bjuggu á Kollsá í Hrútafirði heiðurshjónin Valdís Brandsdóttir og Tómas Jóns- sons. Þau áttu mörg og mannvænleg börn, sem öll voru upp- komin, er þessi saga gerðist. Kollsárheimilið var mannmargt í þann tíð, um tuttugu manns, með vinnufólki og mönnum er voru þar tíma og tíma. Vor eitt var þar maður er Þorvaldur hét, Jóhannesson, að rista ofan af. Skammt frá flaginu, sem hann vann í voru kýrnar á beit. Griðungur, fullvaxinn, gekk með kúnum. Valdimar, yngsti sonur þeirra hjóna, var heima um eða yfir tvítugt. Allt í einu verður Valdimar litið til kúnna og sá þá að nautið er búið að koma Þorvaldi undir sig og hamast þar. Brá hann skjótt við og 83

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.