Strandapósturinn - 01.06.1993, Qupperneq 14
ana, sem hófust kl. 4 í félagsheimili staðarins. Þar söng fyrst
kirkjukór Kustavi, síðan okkar kór og voru viðtökur rnjög góðar.
Eftir tónleikana var farið rakleitt á veitingastað úti í skerjagarð-
inum í Osnás. Þar var hópnurn haldin dýrðleg veisla í boði bæj-
anna tveggja. Bæjarstjórinn, Veijo Katara, flutti ávarp og afhenti
kórnurn fána Kustavi og formaður kórsins þakkaði móttökurnar
og færði bæjarstjórunum báðum gjöf frá Hólmavík, sem var
Hólmavíkurbókin. Einnig fengu Pirkko Jokkela og Hanna Nurm-
inen gjafir frá kórnum, og voru það nælur úr gleri, íslenskar að
sjálfsögðu. Svo var sungið og blandað geði, Pirkko las ásamt
manni sínum kafla úr bók fmnska rithöfundarins, Antti Tuuri,
þar sem hann skrifar um veru sína á Hólmavík. Þess má geta að
Antti Tuuri fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1985.
Morguninn eftir fylgdi Pirkko okkur á leirmunaverkstæði og á
tauþrykkverkstæði. Um hádegi kvöddum við Pirkko og Kustavi
og var þar með vissurn kafla í ferð okkar lokið.
Ekið var í norðaustur frá Kustavi til Hámeenlinna, en borgin
dregur nafn af kastala einum miklum, sem er í borginni miðri
(linna = kastali, virki). Byrjað var á að skoða hann, en síðan farið í
sumarhús, þar sem við gistum. Að morgni þriðjudags, skoðuðum
við Silkihúsið og gamlan útsýnisturn, síðan var lagt af stað frá
Hámeenlinna áleiðis til Lahti. A þeirri leið er Iittala verksmiðjan.
Þar fengum við að sjá hvernig kristallinn verður til, fórum í
verslunina og þyngdist nú farangurinn allnokkuð. 1 il Lahti var
komið seinni hluta dags. Þar gistum við á sumarhóteli í Mukkula-
hverfi í tvær nætur. A miðvikudag fórum við í skoðunarferð um
borgina með leiðsögumanni, fórum m.a. upp í skíðastökkpall og í
Krosskirkjuna, sem var síðasta byggingin sem arkitektinn Alvar
Aalto teiknaði og er mjög nýtískuleg. Hún dregur nafn sitt af
gluggum á framhlið hennar sem rnynda kross. Um kvöldið var
bryggjudansleikur fyrir utan hótelið. Og fólk kom ekki bara gang-
andi eða á bílum, heldur líka á bátum. Öll mættum við að sjálf-
sögðu á bryggjuball og er það sérlega eftirminnilegt.
Að rnorgni fimmtudags fórum við frá Lahti sem er mjög falleg
borg. Við ókurn nú í suður, í átt til Helsinki. Stoppuðum góða
stund í Porvoo, sem er borg nálægt Helsinki. Þar er elsti bæjar-
12