Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 22
Dilkar voru nú með feitasta móti. Sláturhúsið á Óspakseyri sker
sig þó úr hvað þetta varðar, en þar voru hlutfallslega fáir skrokkar
verðfelldir vegna fitu. Að sögn voru dilkar úr Arneshreppi áber-
andi feitir, ólíkt því sem var haustið áður.
Árið 1993 var enn eitt niðurskurðarárið í sauðfjárrækt Stranda-
manna, og í vetrarbyrjun var framleiðsluréttur svæðisins orðinn
uþb. 31% minni en þremur árum áður. Greiðslumark bænda var
nú skert bótalaust, en einhverjir gátu mildað skerðinguna með því
að kaupa greiðslumark af öðrum sem hugðust hætta búskap. Með
þessum hætti var m.a. selt allt greiðslumark af jörðinni Víðidalsá í
Hólmavíkurhreppi. Einnig var hugað að kaupum á framleiðslu-
rétti úr öðrum héruðum.
Mörgum þótti verðlagið á greiðslumarki hátt, og heyrðust í því
sambandi nefndar tölur í námunda við 20.000 krónur fyrir ær-
gildið, þ.e. fyrir réttinn til að framleiða rúm 18 kíló af kindakjöti,
og fá samsvarandi beingreiðslur úr ríkissjóði. Þeir sem töldu verð-
ið of hátt bentu á, að skammur tími væri eftir af gildandi búvöru-
samningi og óljóst hvað tæki við. Þá væri mögulegt að fá um
150-170 kr. fyrir kjötkílóið í útflutningi skv. svonefndum um-
sýslusamningum. Þar sem þetta væru í raun síðustu kjötkílóin á
hverju búi, væri þetta verð etv. ásættanlegt, enda fastur kostnaður
þegar greiddur. í öllu falli væri þetta hagkvæmara en miklar
fjárfestingar í auknum framleiðslurétti. Stuðningur sveitarfélaga
við kaup bænda á greiðslumarki gjörbreytir þó að sjálfsögðu
þessum samanburði, en amk. tvö sveitarfélög í Strandasýslu hafa
lagt fram umtalsverða fjármuni í þessu skyni.
í haust fækkaði sauðfé bænda á Ströndum ekki í hlutfalli við
skerðingu á greiðslumarki, þar sem margir bændur reyna að
halda fyrri bústærð í von um að útflutningur gefi eitthvað í aðra
hönd.
✓
Utgerð og fiskvinnsla
Fiskgengd á Húnaflóa var mun minni á árinu 1993 en árið áður.
Þó gengu línuveiðar og handfæraveiðar þokkalega þegar gaf á
sjó. Mikið var um smáflsk í afla og af þeim sökum var helstu
veiðisvæðum lokað um tíma. Talsverðum hluta þess þorskafla
20