Strandapósturinn - 01.06.1993, Side 57
Rétt áður en við komum að Húsavíkurkleif segir Magnús Jóns-
son við mig: „Hér getur þú séð eina af byggingum frænda þíns“
(Guðmundar Bárðarsonar), um leið og hann bendir á allstóra
torftóft, sem sjáanlega á sínum tíma hefur verið all reisuleg og
kostað mikið erfiði. Kvað Magnús þetta strax hafa verið kölluð
„Óvitatóft“, og bæri það nafn enn þann dag í dag. Ekki mundi ég
neitt eftir þessari tóft, né hafði heyrt neitt um hana getið, en
Magnús sagði að það hefði átt að verða íshús til geymslu á beitu og
öðru.
Þegar ég kom að Smáhömrum spurði ég Björn Halldórsson um
atvik málsins og sagði hann að tóftin hefði verið byggð um 1892 og
að verkinu hefðu staðið auk Guðmundar Bárðarsonar, Björn
sjálfur, Daði Bjarnason á Geststöðum og Grímur Stefánsson í
Húsavík. Ætlunin var að veita vatni í tóftina, láta það frjósa og
inniloka til frystingar á beitu næsta haust. Að vísu hafa þessir
menn verið vankunnandi á þeim tíma um frystingu. En nú lít ég
upp til þeirra fyrir þessa einu tiltekt, þótt ekki væri annað teljandi
þeirn til ágætis. Við erum nú 42 árum síðar að berjast við að kenna
nágrannaþjóðum vorum að borða saltfisk.
Húsavfkurkleif var nú orðin allt önnur yfírferðar. Miðdalsá
beljaði ennþá sitt á hvað eftir sléttlendinu eins og áður, en nú var
mér sagt að í sumar ætti að brúa hana nokkru framar en á vaðinu,
á stað þar sem hún ekki breytti um farveg.
Næsti bær er Kirkjuból. Þar sá ég gömlu réttina, sem nú er lögð
niður, og dilk Guðmundar Bárðarsonar við gafl réttarinnar, en
hann er sem næst hálfhringur. Var mér áður sagt að Guðmundur
hafi byrjað að hlaða dilkinn að rnorgni og verið réttað í honum að
kvöldi sarna dags, enda hafi grjótið verið fyrir hendi.
Leitardaginn, mánudag í 22. viku sumars, var lagt af stað með
birtingu frá Kollafjarðarnesi (þá var ég um fermingu) yfir Hvals-
árdal, þar sem ég þekkti hvert leiti, og fram í Heydalsbotn, sem ég
hafði aldrei séð, með vinnumönnum Guðmundar. Er mér enn í
minni hin stóra fjárbreiða, sem rekin var ofantil við Heydalsár-
skóla til réttar á Kirkjubóli. Mun það hafa verið um nónbil. Feng-
um við þá ríflega útilátna kjötsúpu hjá Grírni bónda áður en féð
var rekið til réttar. í réttinni var allt á ferð og flugi, menn og fé.
55