Strandapósturinn - 01.06.1993, Page 58
Gamla skólahúsið á Heydalsá íjúlí 1939. Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson.
Hver leitaði að sínu marki, við að markinu „sýlt hægra og sneitt
aftan vinstra". Hestar voru margir utan réttar og urmull af hund-
um, sem líka virtust hafa mikið að starfa. Að réttunr loknum rak
hver bóndi sinn hóp heirn til sín, og náðum við ekki heim fyrr en
komið var rnyrkur.
A Kirkjubólsrekanum var viðarmeira á sama stað og það áður
var fyrir rúmum 30 árum. Sagði Magnús mér að það hefði legið á
sama stað frá því er hann fyrst myndi eftir. Túnið á Kirkjubóli
hafði orðið fyrir miklum bótum og bar vott um starfandi hönd.
Var mér sagt að þar byggi nú Benedikt Grímsson.
Næst komurn við að Heydalsá. Þar var fyrirfram ákveðinn við-
komustaður hjá æskubróður mínum Guðbrandi Björnssyni og
Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem veittu öllurn hópnum rausnar-
legar og innilegar mótökur. Búa þau í snotru húsi nálægt skólan-
um, þar sem við fórum í risaleiki á stóru óræktarholti, en nú er þar
slétt túnbreiða. Garnli bærinn stendur þó enn, að mér virtist eins
og hann áður var.
Guðbrandur, sem umsjón hefur með skólahúsinu, sýndi okkur
það. Átti ég bágt með að átta mig á hvar við hefðum sofið, borðað
og lært. En Guðjón Jónsson, sem breytti og byggði við skólann, gat
útskýrt þetta, svo gömlu vistarverurnar sáust ljóst, fyrir þeim sem
til þekktu og voru í skólanum áður en húsinu var breytt. En þó
fannst mér öll þessi herbergi vera miklum mun minni, en þau
56