Strandapósturinn - 01.06.1993, Qupperneq 70
Ljótunnarstöðum, sem sagði mér frá þessum miklu framkvæmd-
um ár frá ári. Hver nýtísku steinbrúin kom eftir aðra yfir hverja á
með bílvegum á milli. Svo mér datt ósjálfrátt í hug „misjafnir eru
blinds manns bitar“, en um það átti ég ennþá betur eftir að
sannfærast. A þjóðveginum rnilli ísafjarðar og Flateyrar kemur
það fyrir, að skjóta verður hesta sem beinbrotna í torfærunum,
garnlar trébrýr, sem hreppsbúar hafa gert á sinn kostnað þykja
góðar, hjá hinu sem verra er.
Að Prestbakka þurfti ég að koma til að ganga að leiði Guð-
mundar Bárðarsonar. Presturinn var ekki heima, en dóttir hans
sýndi mér leiðið, sem er fyrsti legstaður til vinstri handar, þegar
gengið er inn í kirkjugarðinn.
Næsti viðkomustaður var að Bæ. Þar var komið annað fólk,
ungt orðið gamalt, eins og ég. Ur hlaði gekk þar til móts við okkur
Ragnhildur Finnsdóttir, sem ásamt systrum sínum veitti okkur
hlýlegar móttökur. Hér hitti ég bóndannJónJónsson, sem ég ekki
mundi eftir, en hann var lítill drengur í Laxárdal hjá Benoný.
Þangað lánaði Guðmundur Bárðarson mig í kaupavinnu eitt sum-
arið. Kvaðst Jón muna eftir því er ég var að synda í ánni. Hann
hafði þá aldrei séð mann synda og þótti mikið um. í Bæ hitti ég
Ingiríði og Matthías, sem voru hér hjá Guðmundi, þegar ég var í
Bæ, en búa nú í Jónsseli.
Svo var lagt af stað frá Bæ klukkan 7.30 síðdegis og komið að
Borðeyri klukkan 9 að kvöldi.
Nú var um að gera að komast í einhvern áætlanabílinn að
sunnan, sem fóru meðfram Hrútafirðinum hinu megin, en fyrst
og fremst var að fá að vita hvar þeir væru staddir og hvort í þeim
væri nokkurt autt sæti. Við snérum okkur því strax til símstjórans
Magnúsar Richarðssonar að leita upplýsinga, en árangurslaust.
Allir bílarnir voru fullskipaðir, og auk þess ekki hægt að fara yfir
fjörðinn vegna hvassviðris, svo Magnús og frú Sigríður Matthías-
dóttir tóku okkur upp af götu sinni og veittu okkur hinn besta
beina og aðhlynningu.
Næsta morgun, 20. júní, var ennþá sólskin og kuldaveður, en
engar bílferðir til Akureyrar fyrr en á fimmtudag 21. júní, svo nú
68