Strandapósturinn - 01.06.1993, Page 88
Átthagafélagið hófst þegar handa um þróttmikið starf og alla
tíð — í 40 ár hefur félagið haldið uppi fjölþættri starfsemi. Ég ætla
að minnast á örfá atriði:
Skemmtanalífið hefur jafnan verið gróskumikið. Ég minni á
spila- og skemmtikvöld, árshátíðir og vorfagnaði. Jólatrés-
skemmtun fyrir yngstu kynslóðina var til skamms tíma fastur liður
um jólin.
Árlega, oftast á vorin, hefur eldri Strandamönnum verið boðið
upp á veislukaffi þar sem skemmtiatriði hafa verið um hönd höfð.
Á seinni árum hefur þessi veisla verið jafnt fyrir alla — unga sem
aldna — sannkölluð fjöiskylduhátíð brottfluttra Strandamanna.
Ekki má gleyma þorrablótunum, sem nokkrum árum eftir
stofnun félagsins var farið að halda og hafa alltaf verið árviss
fagnaður.
Fyrstu þorrablótin voru haldin í Hlégarði. En um f970 var farið
að halda blótin í Domus Medica. Strandakonur í stjórn og
skemmtinefnd hafa jafnan af miklum myndarskap og fórnfýsi
framreitt þorramatinn. Að vísu höfum við karlarnir rétt hjálpar-
hönd og stutt við bakið á þeim. Ég held að fullyrða megi, að
þorrablótin hafi verið fjölmennustu og vinsælustu samkomur
Strandamanna í Reykjavík.
Á hverju sumri hefur verið farin skemmtiferð og hafa þá
Strandir oft verið heimsóttar. Heimamenn hafa tekið á móti okk-
ur af hlýju og höfðingsskap. Ogleymanlegar eru fjölmennar og
ánægjulegar skemmtanir sem Átthagafélagið hefur haldið, oftast
að Sævangi, í þessum sumarferðum á Strandir.
Starf Átthagafélagsins hefur ekki eingöngu verið bundið við
það að gleðjast saman, þó að það sé vissulega dýrmætt. Félagið
hefur einnig beitt sér fyrir menningarstarfsemi. Á aðalfundi Átt-
hagafélagsins 1961 var kosin nefnd sem kölluð var byggðasafns-
nefnd. Þessi nefnd vann ötullega í samvinnu við Húnvetningafé-
lagið í Reykjavík og byggðasafnsnefnd Strandasýslu að undirbún-
ingi og stofnun byggðasafnsins að Reykjaskóla í Hrútafirði. Þann
9. júlí 1967 var byggðasafnið að Reykjaskóla opnað. Þá afhenti
byggðasafnsnefnd Átthagafélagsins fjárhæð og málverk eftir ís-
leif Konráðsson af Hvítserki. Málverkið var gjöf til safnsins frá
86