Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 14
Stefán Gíslason, sveitarstjóri
Hólmavík:
Fréttir að
heiman 1994
Áttunda árið í röð sest höfundur þessa pistils niður til að setja á
blað fáeina punkta um atburði á Ströndum á nýliðnu ári. Þessir
pistlar eru að verða nokkuð fastur liður í Strandapóstinum. Ef-
laust finnst einhverjum nóg komið, enda pistlarnir hver öðrum
líkir, og e.t.v. farnir að bera merki um vanafestu höfundarins.
Enn verður þó sá sem skrifar að vona, að þetta árlega tilbreyting-
arleysi gangi ekki fram af lesendum, því að mörgu leyti eru árin
hvert öðru lík, rétt eins og pistlarnir, a.m.k. þegar horft er yfir
lengri tíma.
Hvort sem annálahöfundar eru vanafastir eða nýjungagjarnir
standa þeir frammi fyrir þeim vanda, að ákveða hvað skuli tekið
með í upptalningu um atburði liðins árs og hverju skuli sleppt.
Höfundum verður það vísast fyrst á, að geta þess heldur sem þeir
hafa sjálfir upplifað eða heyrt urn, en hins sem var þeim fjær eða
alveg hulið. Það er síðan lesandans að láta sér líka eða mislíka
efnisvalið. Sá sem þetta ritar vill, hvað sem öðru líður, láta í ljós þá
von, að í pistlinum leynist eitthvað sem einhverjum þykir að
fróðleikur eða skemmtan. Þá er tilgangi skrifanna náð.
12