Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 22
áður rak Gunnsteinn Gíslason saltfiskvinnslu í húsi sem áður
tilheyrði Kaupfélagi Strandamanna. Þegar mest var lögðu þar
upp 12 trillur, bæði heimamenn og aðkomumenn. Alls var landað
þar um 160 tonnurn af fiski yfir árið. Hins vegar gekk heldur illa
að selja afurðirnar, einkurn smáfiskinn. Þrátt fyrir erfiðan rekstur
var fiskvinnslan í Norðurfirði þó veruleg búbót fyrir fólkið á
svæðitm, en á árinu greiddi fyrirtækið 3,5 milljónir króna í vinnu-
laun.
Engin vinnsla var í Djúpavík á árinu.
Utgerð frystitogarans Hólmadrangs gekk þokkalega á árinu
1994. Afli var allgóður og jafn fram á sumar. Um haustið var
skipið sent til veiða í Smugunni í Barentshafi. Farnir voru tvær
veiðiferðir á þessar slóðir. í fyrri ferðinni fékkst góður afli, en
seinni ferðin brást algjörlega.
Þorskkvóti Hólmadrangs hefur dregist mikið saman síðustu ár
eins og hjá öðrum skipum. Þó hefur tekist að halda skipinu úti af
fullum krafti allt árið, en þar hafa Smuguveiðarnar að sjálfsögðu
mikið að segja. Þá hefur togarinn verið fengsæll á grálúðumiðum.
Ahersla hefur verið lögð á að kaupa rækjuveiðiheimildir á skipið,
en þær hafa verið nýttar á smærri bátum, þar sem ekki hefur verið
talið hagkvæmt að senda skipið á rækjuveiðar.
I ársbyrjun 1994 tók Þorbergur Kjartansson frá Súðavík við
starfi skipstjóra á Hólmadrangi, en Hlöðver Haraldsson hafði þá
gegnt starfinu nær frá upphafi.
Meira um atvinnumál
Mikill hugur var í handverkshópum á Ströndum á árinu. Um
vorið keyptu hóparnir stórt markaðstjald, sem síðan var tekið
formlega í notkun með markaði á Hólmavík 17. júní. Við sama
tækifæri voru kunngjörð úrslit í samkeppni um nafn á handverks-
hópinn sem starfað hcfur um miðbik sýslunnar. Hlaut hópurinn
nafnið Strandakúnst. Seinna um sumarið var gömlum olíuaf-
greiðsluskúr á Hólmavík breytt í „Gallerí Strandakúnst“, og eftir
það gátu gestir og gangandi keypt heimaunnið handverk í gallerí-
inu. Mikil þörf er þó talin á að finna stærra húsnæði fyrir starf-
20