Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 28
Fyrri hluta ársins lauk svæðisbundnu leiðsögumannanámi á
vegum Ferðamálasamtaka Vestfjarða og fleiri aðila. Brynjólfur
Sæmundsson, héraðsráðunautur á Hólmavík, var eini Stranda-
maðurinn sem lagði stund á þetta nám, og útskrifaðist hann með
góðan vitnisburð og réttindi til leiðsagnar ferðamanna á Vest-
fjörðum.
Litlar framkvæmdir voru í vegagerð í Strandasýslu á árinu
f994. Síðsumars lauk vinnu við vegarkafla innst í Hrútafirði milli
Fjarðarhorns og Valdasteinsstaða, og var hann lagður bundnu
slitlagi í ágúst. Um haustið hófust síðan framkvæmdir við áfram-
haldið, þ.e. veginn frá Valdasteinsstöðum út fyrir Borðeyri. Fyll-
ing hf. á Hólmavík er verktaki í þessu verki, og verður því lokið á
árinu Í995. Þá verður komið bundið slitlag alla leið frá Reykjavík
að Prestbakka í Hrútafirði.
Af öðrum vegaframkvæmdum í sýslunni má helst nefna endur-
byggingu vegar milli Drangsness og Bæjar á Selströnd, svo og
nýjan veg norður við Spena.
A árinu átti að hefja framkvæmdir við veg milli Hálsgötugils og
Hólmakleifar í grennd við Sandnes á Selströnd, en fresta varð
útboði vegna athugasemda sem fram komu við umhverfismat á
vegarstæðinu. Vonir standa til að lausn finnist á þeim málum á
fyrstu mánuðum ársins Í995, þannig að unnt verði að ráðast í
fyrirhugað verk með vorinu.
Lítið var um byggingaframkvæmdir á árinu. Eitt nýtt einbýlis-
hús reis á Hólmavík og annað á Gestsstöðum í Kirkjubólshreppi.
Þá var eitt íbúðarhús byggt á Drangsnesi, nánar tiltekið á grunni
elsta hússins í þorpinu. Einnig var reist sumarhús með tveimur
íbúðum að Bæ á Selströnd. Þar er rekin gistiþjónusta, og eru húsin
ætluð sem viðbót á því sviði. Þá eru ótaldir einhverjir sumarbú-
staðir og vélageymslur.
26