Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 30
Aðrar verklegar framkvœmdir
Á árinu var byggð 30 m harðviðarbryggja á Hólmavík. Þetta
verk er fyrri áfangi af 50 m bryggju, sem ætlunin er að ljúka á
næsta ári. Guðlaugur Einarsson skipasmiður frá Fáskrúðsfirði var
verktaki við bryggjusmíðina, en Ásmundur og Ólafur sf. á
Hólmavík önnuðust smíði masturshúss. Heildarkostnaður við
þessar framkvæmdir var um 14,7 milljónir króna.
Á Drangsnesi var unnið að hafnarframkvæmdum fyrir um 6
milljónir króna. Stærstur hluti þess fjár fór í lagfæringar á lönd-
unarbryggjunni, en einnig var unnið við uppsátur í Kokkálsvík.
Á Norðurflrði var unnið í hafnarframkvæmdum fyrir um 5,5
milljónir króna. Þar var urn að ræða dýpkun við smábátabryggju,
og var verkið í höndum Fyllingar hf. á Hólmavík.
T alsvert var unnið við umhverfl kirknanna á Ströndum á árinu.
Kirkjugarðurinn á Prestbakka var sléttaður og lagfærður og unn-
ið ílóðarframkvæmdum við Hólmavíkurkirkju. Halldór Erlends-
son á Hólmavík sá um bæði þessi verk.
Sveitarstjórnarmál,
Miklar sviptingar voru í sveitarstjórnarmálum á árinu, enda
kosið til sveitarstjórna 28. maí. Mest gekk á í Hólmavíkurhreppi í
tengslum við sameiningu við Nauteyrarhrepp, sem ákveðin var á
vordögum og tók formlega gildi 11. júní. I kosningunum í maí var
kosin sveitarstjórn í hinu sameinaða sveitarfélagi, en kosningin
var kærð og dærnd ógild á þeim forsendum að tilkynning um
sameininguna hefði birst almenningi of skömmu fyrir kosningar.
Kosið var að nýju þann 1. október. Eftir þær kosningar tók Drífa
Hrólfsdóttir á Ytri-Ósi við embætti oddvita í hreppnum, en kona
hefur ekki gegnt því starfi áður. Hún var síðar einnig kosin
oddviti Héraðsnefndar Strandasýslu. Reyndar eru nú 2 konur í
hópi 6 oddvita á Ströndum, því að Guðný Þorsteinsdóttir á Borð-
eyri var kjörin oddviti Bæjarhrepps að loknum kosningunum um
vorið.
28