Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 66
Haraldur Stígsson frá Horni:
Huldumaðurinn
Hann hét Guðjón og var Magnússon og eftir því sem ég hef
komist næst ólst hann upp í foreldrahúsum og hjá eldri bróður
sínum sem þá bjó í Drangavík á Ströndum. Faðir þeirra bræðra
mun hafa verið nokkuð við aldur er Guðjón fæddist því að 13 ár
eru á milli bræðranna. Einhvern tíma á þessum árum gekk bjarn-
dýr á land þarna í víkinni og hugðust heimamenn leggja það að
velli, en skorti vopn við hæfi. Þeir lögðu sarnt til atlögu með það
sem þeir höfðu handa á milli. Dýrið mun hafa haldið til í hústótt
eða fiskhjalli og bauðst gamli maðurinn til að hefja aðförina á
þeim forsendum að það væri minnstur skaðinn að sér ef illa tækist
til. Hvort þeim tókst að fella dýrið er mér ekki ljóst, en fórnfýsi
gamla mannsins vakti verðskuldaða athygli og er enn í minnum
höfð á þessum slóðum.
Foreldrar Guðjóns, eða Gauja, eins og hann var almennt kallað-
ur, voru talin skýrleiks manneskjur, svo og systkini hans og sjálfur
var Gauji vel á sig kominn, allhár vexti og herðabreiður, en ofur-
lítið álútur að mig minnir. Hann var talinn greindur vel, bæði læs
og skrifandi á fermingaraldri og á fleiri sviðum enginn eftirbátur
unglinga á líku reki. Er honum óx fiskur um hrygg fór hann að fá
áhuga á hinu og öðru grúski og meðal annars stjörnufræði.
Reyndi hann um skeið að afla sér þekkingar á því sviði. Það mun
þó hafa reynst margs konar annmörkum háð fyrir blásnauðan
sveitadreng í afskekktri vík norður við Dumbshaf að komast yfir
fræðirit, sem um þetta áhugamál hans fjölluðu. Þó mun honum
hafa tekist að afla sér nokkurs bókaforða og langt fram yfir það
sem almennt gerðist í afskekktum byggðum á fyrsta og öðrum tug
64