Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 133
Ólöf Ragnheiður Guðjónsdóttir:
Avarp
Flutt á ættarmóti niðja
Kolfinnu Jónsdóttur og
Guðjóns Jónssonar
haldið að Brautarholti
að Skeiðum 29. júní
1991.
Komið þið sæl kæru vinir, frændur og venslafólk.
Nú erum við hér samankomin, niðjar Guðjóns og Kolfinnu,
pabba og mömmu, til þess að heiðra minningu þeirra. Á þessu ári
eru 100 ár frá fæðingu hennar, og hann var 5 árum eldri.
Já, við öll þessi stóri hópur erum komin frá þeim.
Þau voru bæði mannkosta manneskjur, blessuð sé minning
þeirra um alla tíð.
Það hafði einhver orð á því, að við sem munum þau, bæði af
eigin kynnum og frásögn þeirra af fyrri tíð, tækjum saman smá
pistil um þeirra lífshlaup. Hjá mér verða þetta nú bara smá punkt-
ar.
Þegar ég man fyrst eftir mér, voru þau að flytja til Hólmavíkur
frá Eyjum í Kaldrananeshreppi og þá til Hólmavíkur í annað sinn,
því þar áttu þau heima sín fyrstu búskaparár; og þar fæddust þeim
tvö elstu börnin Haddi og Ninna. Þrem árum síðar fluttu þau að
Arnkötludal og bjuggu þar næstu 3 árin. Þar fæddist systir okkar,
sem dó nokkurra mánaða gömul óskírð.
Arnkötludalur var frekar afskekkt dalajörð, og lélegur húsa-
kostur, gamall torfbær, sem hrundi ofan yfir fólkið einn dag
131