Saga - 2017, Blaðsíða 200
víða í bókinni. Guðrún skrifar á gagnsæjan hátt, heimildirnar eru sýnilegar
í textanum og lesandi á því auðvelt með að fylgja þeim ályktunum sem hún
dregur, en þessi aðferð er ekki gallalaus. Stundum verður nafnasúpan af
Þórdísum, Guðrúnum og Ragnheiðum og öllum þeim AM 53 fol til AM 765
4to sem þær áttu, og arfleiddu hver aðra að, svolítið yfirþyrmandi. Þetta er
ef til vill eitthvað sem hefði mátt laga með strangari yfirlestri því textinn á
það til að verða upptalningakenndur. Hvað yfirlestur varðar má einnig
benda á það smáatriði annars vegar að heimildatilvísun á bls. 36 kemur fyrir
sjónir eins og bein tilvitnun og öllu stærra atriði hins vegar að heitið á
fimmta kafla er misvísandi. kaflinn hefur yfirheitið Skrifandi konur á Íslandi
á miðöldum en rétt eins og allir aðrir kaflar í bókinni fjallar hann að miklu
leyti um tímann eftir siðaskipti, þótt hann hefjist á miðöldum.
Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar hefði vel getað orðið afmörkuð
rannsókn á sérhæfðu efni en raunin er sú að hún hefur mikla almenna
skírskotun. Bókin byggist á metnaðarfullri frumheimildarannsókn sem
opnar lesendum leið að áhugaverðum flötum íslenskrar sögu, en hún hefði
líklega orðið áhrifaríkari hefði hún notið strangari ritstjórnar.
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
LANDSNEFNDIN FyRRI 1770–1771. I–II. Ritstjórar Hrefna Róberts -
dóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir. Þjóðskjalasafn Íslands. Í sam -
starfi við Ríkisskjalasafn Danmerkur og Sögufélag. Reykjavík 2016. I.
Bréf frá almenningi. II. Bréf frá prestum. — Myndir og skrár.
DEN ISLANDSkE LANDkOMMISSION 1770–1771. I–II. Redaktører
Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir. Islands National -
arkiv. I samarbejde med Rigsarkivet og Islands Historiske Forening.
Reykjavík 2016. I. Breve fra almuen. II. Breve fra præster. — Myndir og
skrár.
Árið 1958 hóf Sögufélag að gefa út bréfasafn hinnar svokölluðu Lands -
nefndar sem safnaði fróðleik og tillögum um hag Íslendinga á árunum
1770–71. Það ár og árið 1961 komu út tvö bindi, í ritstjórn Bergsteins Jóns -
sonar, með bréfum frá nefndinni og álitsgerðum biskupanna beggja, Ólafs
Stefánssonar amtmanns og tíu sýslumanna. Ekki var þessu útgáfuverki
haldið lengur áfram, en nú hefur Sögufélag farið af stað með nýja útgáfu í
samvinnu við Þjóðskjalasafn Íslands og Ríkisskjalasafn Dana. komu tvö
fyrstu bindin út í fyrra, mikil verk, 1390 blaðsíður samtals. Eins og ráða má
af titlum og tölusetningu bindanna er þetta ekki framhald af fyrri útgáfu
Sögufélags heldur var fitjað upp að nýju og stefnt að því að gefa allt skjala-
safn nefndarinnar út, þar á meðal bréfin sem komu út á árunum 1958–61. Til
ritdómar198
Saga vor 2017.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 18.5.2017 11:01 Page 198