Strandapósturinn - 01.06.2012, Side 26
26
synjað. Skáldmæltur var hann og eru handrit eftir hann geymd í
Landsbókasafni.4 Snæbjörn í Hergilsey telur Jón hafa verið annan
af tveimur sterkustu mönnum í Vestfirðingafjórðungi.5
3.
Löngum hafa menn verið glöggir á að skynja gæði jarðarinnar
Gautshamars á Selströnd, bæði til lands og sjávar. Og þaðan
virðast mér sprottin langflest ofurmenni sem Selströndin
hefur fóstrað. Í 21 ár, frá 1843–1864, var bóndi þar Sæmundur
Björnsson Hjálmarssonar prests í Tröllatungu, fæddur 19. mars
1801. Hann var „frægur söngmaður, glaðvær og vinsæll“ og
hagorður. Hann var tvíkvæntur og átti með þeim 7 börn og þar
að auki 4 börn utan hjónabands með fjórum konum. Voru þrjár
af þessum sex konum systur. Út frá öllu þessu dó hann svo 6.
júlí 1864.6
4.
Ólafur Andrésson. Fæddur 1835, dáinn 10. febrúar 1887. Bóndi á
Gautshamri 1873–81 og 1883–84. „Mikill aflamaður og formaður
á Gjögri, karlmenni með afbrigðum og geðstilltur.“ Smiður.7
Talinn sterkasti maður í Vestfirðingafjórðungi. Og enn segir
Snæbjörn í Hergilsey frá: „Eitt sinn voru menn í bændaglímu
á Gjögri. Ólafur var annar bóndinn, en hlaut af tilviljun lakara
lið. Glímdi hann þá við 50 menn. Glímt var á skafli, lét hann þá
alla í sama bólið, bar þangað suma, er ekki féllu nálægt.“ „Það
var í kring um 1878, er Ólafur bjó á Gautshamri, að mannýgt
naut var á Hafnarhólmi. Einn dag gengur bóndinn ofan að
hjöllum við sjóinn. Nautgripir höfðu verið úti á hlíðinni. En
nú sést að heiman, að þeir eru komnir út að lendingunni og
bóndi á leið heim, en hnígur niður. Er þá hlaupið til hans. Er
hann þá í andarslitrunum og mállaus orðinn. En traðkur mikill
sást á mölinni hjá hjöllunum. Vissu menn, að nautið hafði
orðið honum að bana, enda sáust merki á líkinu, að brjóstið
hafði sprungið.“ Þetta gerðist 28. júlí 1878 og var bóndinn á
Hafnarhólmi Jón Eyjólfsson, skutlari, 68 ára að aldri.
4 Strandamenn. Æviskrár, bls. 364/365.
5 Saga Snæbjarnar í Hergilsey, bls. 18.
6 Strandamenn. Æviskrár, bls. 374/375.
7 Strandamenn. Æviskrár, bls. 375.