Strandapósturinn - 01.06.2012, Qupperneq 83
83
Norð urfjörð. Vikur er hér víða með sjó úr gosinu 1875. Húsá hér
fyrir utan bæinn fellur niður klappir í mjög breiðum fossi.158
21. ágúst. Surtarbrandur (?) kvað hafa fundist uppi undir
Svartahnúk suðaustan við Ófeigsfjörð, líklega þó lítilfjörlegt.
– Kl. 12 fórum við frá Ófeigsfirði, fyrst yfir Húsá sem rennur
rétt fyrir utan bæinn í fossum eins og ullarkemba fyrir of an
niður stallana breiðandi sig út beggja vegna. Hér alls staðar
með fjörunni er rekaviður fúinn að koma upp út úr börðum og
þúfum þétt hvað við annað, einn malarkambur af tré. Riðum
mela og hölkn að Hvalá. Hún er mikið vatnsfall, töluvert meiri
en Vatnsdalsá. Neðst breiðir hún sig út sem ós en stutt er upp
að háum fossum159 í tvennu lagi og græn eyja160 skiptir þar
fossunum. Í syðri foss inum klettur, hún talin ófær þegar yfir
hann fellur. Syðri kvíslin var vatnsmeiri, straumhörð og fremur
ill í botn. Við fórum litlu fyrir neðan fossinn, fyrir neðan grænu
eyjuna. Utar gengur út klettótt nes161 sem riðið er fyrir ofan.
Þar dálítið yfir sjó fúatimbur í þúfum og dálítil terrassmyndun
allhá með malargrjóti. Önn ur á með fossum162 rennur niður
nokkru utar, á einum stað svo þröng kleif163 að ei var hægt að
fara nema taka ofan koffortin. Halli laganna í nesinu norðan við
Ófeigsfjörð ca. 5° út. Selur hér á hverju skeri, stinga sér er fram
hjá er farið, koma upp hausarnir. Í Ófeigsfirði 100 kópar árlega.
– Hellar eru stórir í sævar máli framan í Reykjaneshyrnu.164
Við fórum út með og yfir Hrútanesið165 og inn með Eyvindarfirði;
er versti vegur, eintómar klappir og urðir, hallandi fellaflesjur,
hæstar og brattastar til vesturs eftir lagahallanum.166 Í Eyvindarfirði
fjarska hrjóstrugt og ljótt, eintóm urð í fjöllunum og gras óvíða.
Eyvindará167 fellur niður háar aðlíðandi klapp ir168 niður í sjó og er
158 Fossinn heitir Húsárfoss en af skipsfjöl Blæja.
159 Heita einu nafni Hvalárfoss.
160 Hvalárhólmi.
161 Nefnist Háireki.
162 Dagverðardalsá og fossinn í henni nefnist Dagverðardalsfoss.
163 Hrafnskleif. Lýsing Þorvalds á kleifinni er alveg rétt.
164 Hér á Þorvaldur við Dugguholu í Litlu-Ávík.
165 Hrúteyjarnes.
166 Suðurströnd Eyvindarfjarðar nefnist einu nafni Básar.
167 Oftast nefnd Eyvindarfjarðará.
168 Heita Þröskuldar.