Strandapósturinn - 01.06.2012, Blaðsíða 107
107
Munnmæli um Guðmund góða, er hann vígði Hælavíkurbjarg,
að menn ei trúðu vel signingum hans en hann vildi þó endilega
vígja einn festarþátt sem maður sé í. Kom þá grá loppa út úr bjargi
og var sagt: „Haltu nú, Gvendarþátt ur,“ og skar á. Allir þættir fóru
sundur nema Gvendarþáttur.
Hér á Hornströndum hefir gamall skrælingjaháttur helst farið
af á 20–30 seinustu árum af því menn annars staðar að hafa smátt
og smátt flutt sig hing að.
Terrass hér fast innan við Hornbæ og bærinn byggður á
röndinni. Honum má fylgja kringum alla Höfn og er hann mjög
glöggur í Rekavík. Ófærð var á Hafnarfjalli, á miðjar síður fyrir
viku síðan og fjarska hefir snjóað síðan.
28. ágúst. Um morgun kuldi eins og vant er, regn og snjóýringur
og þoka. Fór um á stað frá Horni kl. 10½, við Ögmundur
báðir vesælir, Jón Guðmundsson frá Bjarnarnesi fylgdi okkur.
Dimmviðrisþoka á fjallinu. Á fjallinu að Almenn ingaskarði snjór
allur freðinn ofan og broti, þó minni snjór en seinast, náði
hér og hvar í mitt læri á klárunum. – Hér á Hornströndum
hafa menn haldið mikið upp á rímur og láta börn heita til
dæmis Angantýr, Reimar, Fjalar. – Í Látravík terrassmyndun,
malargrjót ofan á hömrunum. Á Axarfjalli eintómur snjór og urð.
Í Hrollaugsvíkurdal malargrjótsleifar dálitlar, þó er verulegur
terrass að sjá. Standar fyrir utan bergið sumpart gangar sumpart
lausir bjargpartar, oftast stór fótur kringum sem sést við fjöru og
út af bjarginu (abrasions-flächen).313 – Úr Hafnarbás og víkum314
var mjög örðugt áður að fara kaupstaðarferðir um Hafnarfjall og
svo sjóleið. Stígur var einn hinn fyrsti fyrir 25–30 [árum] sem fór
að fara sjóveg kringum allt en það er hættuspil og þarf stór skip
og gott veður. Fyrst 1882 gátu fengist samtök til þess að menn
beiddu um skip af Ísa firði á Hafnarbás.
Alltaf þokufýla. Riðum að Smiðjuvík efri veg en seinast á
nokkrum parti en ekki sást neitt fyrir niðaþoku. Kom þar við og
drakk kaffi hjá Guðmundi Ólafssyni. Hann, Jón Guðmundsson í
313 Rofflötur.
314 Með víkum á Þorvaldur væntanlega við bæina Bjarnarnes (við Hrollaugsvík) og
Smiðjuvík.