Strandapósturinn - 01.06.2012, Blaðsíða 66
66
með. Kom að bænum Arnkötlu dal. Þar fyrir ofan (austan), uppi
undir hlíðinni, rennur lækur39 fram og í bökk um hans skammt
frá bænum er surtarbrandur nokkur, kvistóttar trjáhellur og
leirmyndanir í kring, allt laust í lækjarbökkunum ofan á
surtarbrandinum og ekkert hægt að sjá; gráleitur leir undir,
grófur ofar, rauðleitur leir í fast berg, af honum náði eg ekki.
Gekk seinna upp með Tunguá. Fyrir neðan Hlíðarsel er
dalurinn dálítið lægri heldur en þar fyrir utan. Tveir fossar eru
fyrir ofan steingjörvingalagið en einn á leiðinni þaðan að bænum.
Skoðaði gilið40 litlu fyrir utan Hlíðarsel. Þar er neðst rauður leir
með bollum og dálitlum sporum til surtarbrands, þar á ofan leir
eða þess konar brecciumyndað (líkt og trachyt-breccia),41 í því
lagi allstór ar surtarbrandsagnir og flatir lurkar; svo þykkt
brecciulag42 svart, sem kemur fram víða við ána, efst basalt er
klýfst í súlur. Rauða lagið neðsta kemur fram í árbökkunum
dálítið fyrir neðan gilið. Suddarigning alla leið. Frá Tröllatungu
að þessu gili nærri tveir kilometer en að steingjörvingunum við
ána 1,2 kilo meter.43
6. ágúst. Krapaslettingur um morguninn hér í byggð. Mikið
snjóað í fjöllum, Leiðaröxl44 alhvít, Hróáreggjar45 gráar nokkuð
en þó minna snjóað á norður fjöllum (Trékyllisheiði etc.).
Ögmundur kom, hafði verið um nóttina á ferðinni. Eg fór upp
að surtar brandi og skoðaði. – Grasatekja er hér víða en allmikil
vestanlands, eg hefi séð fjallagrös ætluð til matar í Haga, Bæ og
Arnkötludal. – Halli sýnist vera hér 1–2–3° til norðurs, þó mjög
óglöggt, en hinum megin fjarðar ca. 8° til austurs.
39 Lækurinn heitir Bæjarlækur.
40 Gilið nefnist Landamerkjagil en í daglegu tali aðeins Merkjagil.
41 Basalt-kubbabergslag.
42 Kubbabergslag.
43 Minnisgrein (III, bls. 151): „Svarthamar, klettur í syðri brúninni töluvert suður af
Vonarholti. Þar á móti í vesturbrún Hrafnabjörg, hvítur leir að því er Guðbjörg,
konan á Arnkötludal, seg ir.“ Guðbjörg þessi var Magnúsdóttir og var seinni kona
bóndans í Arnkötludal, Guðmundar Sæmundssonar (Jón Guðnason (1955), bls.
274).
44 Leiðaröxl er norðarlega á Heiðarbæjarheiði milli Tungudals og Miðdals gegnt
Tröllatungu bænum og er örnefni þetta full-norðarlega á prentuðum kortum.
Nyrst á heiðinni er Búrfell.
45 Hrófáreggjar eru vestan við Hrófá.