Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 47

Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 47
47 Rúmum hálfum mánuði seinna kom allt dótið með Skjaldbreið, og peningarnir lágu óhreyfðir í umslögunum efst í töskunni, ekki þætti þetta mikið fé nú, því ég væri rúma þrjá tíma að vinna fyrir þessu þriggja mánaða kaupi mínu þá og hefði þó styttri vinnutíma. En eins og krakkarnir mínir segja stundum við mig, það er ekki að marka, þetta gerðist í hundgamla daga, þegar þú varst ung, árið 1948. Má af þessu sjá að heiðarlegir voru þeir Akureyringar í þá daga eða kannski engum þeirra hafi dottið í hug að gömul trétaska bundin aftur með snærisspotta gæti haft nokkuð fémætt að geyma, og það var okkar lán. Ég er stundum að hugsa um hve bágt þetta blessað unga fólk á nú til dags, sem getur veitt sér flesta hluti, en virðist þó varla nokkurn tíma vera verulega hamingjusamt og glatt, en jafnaldrar mínir áttu ótal gleðistundir, þó ekki væru auraráðin alltaf mikil og stundum engin, lífið var bara svo yndislegt. Að lokum eru hér tvær vísur sem við fengum sameiginlega frá einum kostgangaranum á Laugum þetta sumar og líkaði afbragðsvel allt það er ég bakaði ofan í þá strákana og gesti og gangandi, er um Reykjadalinn áttu leið. (Lag: Tondeleio.) Ég fann þig á kyrrlátu kveldi, þú komst til að bæta mér tjón. Og mæltir með örgrun í orðum: hvar er nú bíllinn og Jón, Hallur og Holtakots Jón. Magnveiga mín, Magnveiga mín. Næturlangt fékk ég að njóta og unna, í næði hjá dimmgrænum þingeyskum runna. Magnveiga, Magnveiga mín. Ég man eftir miðjan ágúst ég mætti þér norðan við pól, er kveldvarmar kinnar þínar kysstu hnignandi sól. Þú mæltir: við skulum í skjól. Magnveiga mín, Magnveiga mín. Nú lyngið er farið af berjum að blána, í bollanum handan við Reykjadalsána. Magnveiga mín, Magnveiga mín.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.