Strandapósturinn - 01.06.2012, Page 87

Strandapósturinn - 01.06.2012, Page 87
87 Það er gamalla manna mál að þegar miklir austangarðar ganga á haustum að þá komi ísar fyrr á vetrum. – Mönnum hér illa við Ameríkumenn sem fiska alveg uppi í landsteinum.192 Ýmsir hér á Ströndum ólesandi af eldra fólki og margir óskrifandi. Fórum kl. 3½ frá Dröngum, vegna fjörunnar ei fyrr, eg hafði líka verið að safna plöntum. Maður fylgdi okkur þaðan. Framan af er góður vegur með sjón um. Á Vatnshöfða er dálítið vatn,193 nokkuð, ca. 25 fet, yfir sjó, fráskilið með hækkuðum malarkambi. Alls staðar eru hér fúasprek og viður með sjónum. Þó telja menn það hér varla nóg til eldiviðar af því þetta er töluvert minna en ókjörin sem áður voru. Fórum fyrir framan Meyjardal yfir á194 samnefnda sem töluvert vatn er í. Í björtu sést jökullinn bak við dalinn og er þar syðsta bunga hans; sýnist vera lægra bak við hann en fjöllin til hliðanna kannski drög niður að honum. Áin kemur mest úr lækjum á heiðinni, þó líka undan jökli. Eigi var þó jökullitur á henni. Þegar kemur inn í Bjarnarfjörðinn fer vegurinn að verða verri, eru þar klappir, eftirstandandi basaltlög, klettatangar og klif195 líkt og í Eyvindarfirði. Þar sáum við seli á hverjum steini sem stukku niður og ráku svo upp hausana að horfa á oss. Nú gerði húðarrigning og þoku. Fjörðurinn er langur og mjór, sjaldan farið með honum en gangandi menn á vetrum ferjaðir yfir mynnið.196 Innarlega er nes sem heitir Langanes og undan því má um fjöru ríða þvers yfir fjörðinn en svo var ekki fallið út að við gætum farið þar en fórum inn fyrir. Tangi úr Drangajökli, líklega skriðjökull, gengur niður drögin niður undir dal botninn en við sáum það ei fyrir þoku og úr honum fellur kolmórauð á, Bjarn- arfjarðará. Fellur hún á mörgum eyrum197 í fjörðinn og er allmikil, verður oft ófær en þá má ríða fyrir utan um fjöru. Hún gerir skolalitan fjörðinn langt út eftir. 192 Hér er líklega átt við amerísku lúðuveiðarana. Þeir voru við lúðuveiðar, einkum undan Vest fjörðum, á árunum 1884–1897; sbr. Jóhann Diego Arnórsson (2010). 193 Vatnshöfðavatn. 194 Meyjará. 195 Nefnast Kleifar einu nafni. 196 Ferjað var frá Meyjarseli yfir í Skaufasel norðan megin og var svo meðan búið var á báðum bæjunum. 197 Bjarnarfjarðareyrar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.